
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Rekstrar- og mannauðssvið Landspítala auglýsir laust til umsóknar fullt starf verkefnastjóra í gagnavinnslu og klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild.
Á hagdeild er unnið að þverfaglegum verkefnum sem m.a. lúta að söfnun, úrvinnslu, greiningu og miðlun gagna og upplýsinga um starfsemi og rekstur Landspítala og uppbyggingu vöruhúss gagna. Deildin hefur auk þess umsjón með áætlanagerð og framleiðslumælikvörðum (DRG) og annast hvers konar rekstrar- og kostnaðargreiningar.
Leitað er eftir jákvæðum, áhugasömum og drífandi einstaklingi með brennandi áhuga á heilbrigðisgögnum og sem er reiðubúinn að takast á við spennandi verkefni á Landspítala. Starfið er laust samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnsla, greining og miðlun klínískra upplýsinga úr vöruhúsi gagna
Svörun klínískra fyrirspurna er varða starfsemi Landspítala
Ráðgjöf og samstarf við aðila innan og utan Landspítala, m.a. í tengslum við umbóta- og þróunarverkefni
Vinnsla gæða- og árangursvísa
Samantekt rannsóknargagnasafna
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á heilbrigðissviði
Reynsla og þekking á klínískri skráningu í sjúkraskrá
Greiningarhæfni, tölulæsi og hæfni til framsetningar tölulegra gagna
Færni í Excel og færni í að tileinka sér notkun upplýsingakerfa
Reynsla í notkun upplýsingakerfa, s.s. Business Objects (BO), Power-BI eða sambærilegra skýrslu- og gagnagreiningartóla er kostur
Framhaldsmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur
Frumkvæði, jákvæðni, og samskipta- og skipulagshæfni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 3/5
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, klínísk skráning, verkefnastjóri, gagnavinnsla
Staðsetning: Skaftahíð 24, 105 Reykjavík
viðkomandi stéttarfélag Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri í klínískum starfsemisgreiningum á hagdeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026