Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Viðskiptagreinandi / prófari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026
Viðskiptagreinandi / prófari
Embætti ríkislögreglustjóra leitar að tveimur metnaðarfullum viðskiptagreinendum / prófurum til starfa í öflugu og þverfaglegu teymi sem annast greiningu, þróun, prófanir og innleiðingu upplýsingakerfa.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf þar sem lögð er áhersla á að tengja saman þarfir starfseminnar og tæknilegar lausnir. Starfið felur í sér greiningu viðskiptaþarfa, skilgreiningu krafna, framkvæmd prófana og stuðning við innleiðingu nýrra eða breyttra kerfislausna, með það að markmiði að tryggja gæði, notagildi og árangursríka innleiðingu.
Starfið hentar einstaklingi sem hefur sterka greiningarhæfni, nýtur þess að vinna í samstarfi við ólíka hagaðila og hefur áhuga á að þróa lausnir sem bæta þjónustu og rekstur. Viðkomandi verður hluti af þverfaglegu teymi og vinnur náið með vörueigendum, þróunarteymum, notendum og öðrum hagaðilum að því að tryggja að lausnir uppfylli þarfir starfseminnar og standist gæðakröfur.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greina og skilgreina viðskipta- og notendaþarfir í samstarfi við hagaðila.
Móta skýrar, mælanlegar og prófanlegar kröfur, notendasögur og virknilýsingar.
Hanna og framkvæma prófanir á upplýsingakerfum, og staðfesta að lausnir uppfylli skilgreindar kröfur.
Skipuleggja og samræma notendaprófanir, og fylgja niðurstöðum eftir.
Greina, skrá og fylgja eftir villum og lagfæringum í samstarfi við teymisins.
Taka þátt í undirbúningi innleiðingar nýrrar virkni og styðja við notendur.
Útbúa og viðhalda þjálfunarefni, leiðbeiningum og notendagögnum.
Stuðla að stöðugum umbótum á ferlum, vinnubrögðum og upplýsingakerfum.
Hæfniskröfur
Menntun, þekking og reynsla
Háskólamenntun sem nýtist í starfi eða sambærileg starfsreynsla.
Reynsla af greiningu viðskiptaþarfa, kröfuskilgreiningu, prófun hugbúnaðar eða innleiðingu upplýsingakerfa.
Reynsla af prófunum, gæðatryggingu og villumeðhöndlun.
Góð þekking á gerð skjala, verklýsinga og notendagagna.
Þekking á verkefna- og prófunarstjórnunarverkfærum, svo sem Jira, Confluence eða sambærilegum lausnum.
Þekking á Agile/Scrum vinnubrögðum er kostur.
Persónulegir eiginleikar
Greiningarhæfni og skipulögð vinnubrögð.
Sjálfstæði, frumkvæði og ábyrgð í starfi.
Góð samskipta- og samstarfshæfni.
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og markvissan hátt.
Áhugi á stöðugum umbótum og þróun upplýsingakerfa.
Hæfni til að vinna markvisst með ólíkum hagaðilum og ná árangri í þverfaglegu samstarfi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Embætti ríkislögreglustjóra er öflugur þekkingarvinnustaður, þar sem framúrskarandi mannauður sinnir fjölbreyttum og samfélagslega mikilvægum verkefnum. Lögð er áhersla á opin og jákvæð samskipti, markvissa starfsþróun og gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Embættið hefur hlotið jafnlaunavottun.
Stefna embættis ríkislögreglustjóra:
Tilgangur er að vernda og virða
Sýn okkarer að vinna að öruggara samfélagi
Markmið er að vera þjónustudrifin, framsækin og upplýsandi
Áherslur okkar eru þjónusta - fagmennska - mannauður - tækni ¿ reksturs
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst 2026. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá lokum umsóknarfrests. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í auglýsingu. Umsækjendum um störf hjá embætti ríkislögreglustjóra kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vakin er athygli á því að samkvæmt 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996 má engan skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur hlotið fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir að hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu. Með vísan til 24. gr. varnarmálalaga nr. 34/2008 og 20. gr. reglugerðar nr. 959/2012, sbr. einnig 30. og 31. gr. reglugerðarinnar þarf starfsmaður að standast bakgrunnskoðun til að hljóta öryggisvottun vegna starfans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Ríkislögreglustjóri
Upplýsingar um starf
Starf
Viðskiptagreinandi / prófari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026