Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Hjúkrunarfræðingur á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Viltu vinna í dagvinnu þar sem þú hefur tíma til að sinna skjólstæðingum, þróast í starfi og njóta góðs jafnvægis milli vinnu og einkalífs?
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings (80-100%) við dag- og göngudeild geðdeildar á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Á dag- og göngudeildinni vinnur þú með skjólstæðingum 18 ára og eldri og færð tækifæri til að byggja upp meðferðarsamband og fylgja fólki eftir í bataferli þess. Starfið er fjölbreytt, gefandi og krefjandi og gefur þér svigrúm til að nýta fagþekkingu þína til fulls.
Dagvinna skapar gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs án þess að þú þurfir að fórna faglegum áskorunum. Jafnframt færðu tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi þróun og umbótastarfi deildarinnar, þar sem unnið er markvisst að því að efla þjónustuna.
Á deildinni starfar öflugur og samhentur hópur hjúkrunarfræðinga og geðhjúkrunarfræðinga sem leggur áherslu á stuðning, samvinnu og faglega þróun. Nýir samstarfsfélagar fá aðlögn á deildinni sem styður við fyrstu skrefin í starfi. Auk þess taka nýráðnir hjúkrunarfræðingar þátt í verkefninu ,,Fyrsta ár í starfi", sem er sérstakt stuðnings- og fræðsluverkefni SAk og byggir ofan á nýliðafræðslu deildarinnar. Markmiðið er að efla öryggi, faglega færni og vellíðan nýrra hjúkrunarfræðinga á fyrsta starfsárinu.
Ef þú vilt vinna á vinnustað þar sem fagmennska, þróun, stuðningur og góð liðsheild fara saman, hlökkum við til að fá umsókn frá þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og meðferðarvinna skjólstæðinga og þjónusta við þá í formi einstaklings- og hópameðferðar
Samvinna við skjólstæðinga, fjölskyldur og samstarfsfólk þvert á faggreinar með það að markmiði að veita sem besta þjónustu við viðkomandi og/eða fjölskyldu hans
Samstarf við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Ábyrgð á þróun starfs og gæðum þjónustu gagnvart skjólstæðingum
Þátttaka í starfsþjálfun og handleiðslu nema og nýrra starfsmanna ásamt miðlun fræðslu
Þátttaka í þróun sinnar einingar hvað varðar skipulag, stefnumótun og framkvæmd starfseminnar
Fagleg tengsl og samráð við samstarfsaðila innan og utan stofnunar
Heldur utan um skýrslur og skráir upplýsingar í þar til gerð sjúkraskrárkerfi um meðferð skjólstæðinga, tryggir að allar upplýsingar séu skráðar með viðeigandi lögum og reglum og árangursmetur þjónustuna og þróun hennar.
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf frá viðurkenndri menntastofnun og gilt íslenskt starfsleyfi
Starfsreynsla á geðsviði er er kostur
Reynsla af þverfaglegri teymisvinnu heilbrigðisstétta er kostur
Auk fagþekkingar er lögð áhersla á frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð og að viðkomandi hafi hæfileika á sviði samskipta og samvinnu
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á dag- og göngudeild geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026