
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á almennri göngudeild 10E við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026
Hjúkrunarfræðingur á almennri göngudeild 10E við Hringbraut
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á almennri göngudeild 10E við Hringbraut.
Á deildinni starfa þrjú sérhæfð hjúkrunarteymi sem veita fjölbreytta og metnaðarfulla þjónustu:
Kviðarholsteymi - sinnir einstaklingum með sjúkdóma í kviðarholi og veitir sérhæfða hjúkrunarþjónustu á öllum stigum meðferðar.
Meltingarteymi - sinnir einstaklingum með langvinna meltingarfærasjúkdóma, meðal annars bólgusjúkdóma í þörmum (IBD), skorpulifur og fleiri, auk sjúklinga með næringarslöngur og -hnappa. Þá er veitt meðferð á innrennslismóttöku þar sem gefin eru ýmis lyf, svo sem líftæknilyf og jafnframt framkvæmdar rannsóknir á meltingarvegi, svo sem öndunarpróf og myndhylkisrannsóknir.
Ígræðsluteymi - sinnir einstaklingum sem eru í undirbúningi fyrir eða hafa gengist undir líffæraígræðslu, auk lifandi líffæragjafa. Áhersla er lögð á fræðslu, ráðgjöf, stuðning og skipulagða eftirfylgd. Teymið starfar í nánu samstarfi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og fjölmargar sérgreinar innan Landspítala.
Hvert teymi samanstendur af öflugu þverfaglegu starfsfólki sem vinnur markvisst að því að veita framúrskarandi þjónustu og stuðla að bættum lífsgæðum sjúklinga. Um er að ræða spennandi starf fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á sérhæfðri hjúkrun, sjálfstæðum vinnubrögðum og þátttöku í þróun þjónustu.
Hvers vegna að starfa hjá okkur?
Við bjóðum upp á:
Fjölbreytt og spennandi starf í sérhæfðu klínísku umhverfi
Tækifæri til faglegrar þróunar og símenntunar
Öflugt þverfaglegt samstarf
Verkefni sem kalla á sjálfstæð og ábyrgðarfull vinnubrögð
Metnaðarfullan og styðjandi vinnustað þar sem áhersla er lögð á gæði, öryggi og framþróun þjónustunnar
Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 80-100% dagvinna og er starfið laust frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita einstaklingsmiðaða og heildræna hjúkrunarmeðferð
Taka þátt í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga
Stuðla að þróun verkferla og gæðastarfs á göngudeild
Starfa í náinni þverfaglegri samvinnu innan og utan deildar
Kviðarholsteymi:
Þátttaka í greiningarferli og meðferð einstaklinga með krabbamein í kviðarholi
Undirbúningur fyrir og eftirfylgd eftir aðgerðir á kviðarholi
Sárameðferð, skurðsára og flóknari sára
Aðstoð við framkvæmd minni háttar aðgerða í staðdeyfingu
Móttaka einstaklinga með vandamál í grindarbotni
Eftirfylgd eftir efnaskiptaaðgerðir
Ráðgjöf, fræðsla, stuðningur og meðferð einstaklinga með stóma
Meltingarteymi:
Einstaklingsmiðuð og heildræn hjúkrunarþjónusta
Þátttaka í greiningu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með meltingarsjúkdóma
Gjöf líftæknilyfja og önnur innrennslismeðferð
Framkvæmd rannsókna á meltingarvegi
Fræðsla og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
Ígræðsluteymi:
Undirbúningur fyrir og eftirfylgd eftir líffæraígræðslu
Eftirfylgd lifandi líffæragjafa
Fræðsla og stuðningur við sjúklinga og aðstandendur
Samskipti og samstarf við innlenda og erlenda samstarfsaðila
Skráning og utanumhald gagna
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á almennri göngudeild 10E við Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
14.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026