
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
01.09.2026
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á gjörgæslu í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptafærni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun sem stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans.
Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% og unnið að mestu í dagvinnu. Starfið er laust frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-,skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Á deildinni starfa tæplega 100 starfsmenn; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar og hágæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma. Deildin er opin allan sólarhringinn alla daga ársins.
Fram undan eru spennandi tímar vegna flutnings í nýjan meðferðarkjarna Landspítala við Hringbraut, þar sem opna mun ný sameinuð gjörgæsludeild. Sameining deildanna felur í sér mikilvæg tækifæri til að efla samvinnu gjörgæsludeilda, samræma verklag og nýta þekkingu og reynslu starfsfólks þvert á einingar. Mikil áhersla er lögð á öfluga liðsheild, opið samtal og þátttöku starfsfólks í mótun framtíðarskipulags gjörgæsluþjónustu, með það að markmiði að tryggja áfram framúrskarandi, örugga og sjúklingamiðaða þjónustu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinnur með deildarstjóra að skipulagningu starfseminnar og mótun liðsheildar
Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu í samráði við deildarstjóra
Stuðlar að uppbyggingu jákvæðrar menningar og sálræns öryggis starfsfólks
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Viðbótarnám í gjörgæsluhjúkrun er kostur
Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
Stjórnunarþekking og leiðtogahæfni
Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
Lausnamiðuð hugsun, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
Áhugi á umbóta- og gæðastarfi
Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. Nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun, aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar
Starfshlutfall er 100%
Tungumálahæfni: íslenska 5/5
Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Gjörgæsla í Fossvogi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
01.09.2026