Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri skurðlækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.08.2026

Umsóknarfrestur

21.08.2026

Deildarstjóri skurðlækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri

Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að veita skurðlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri forstöðu. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða hæfni í mannlegum samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar sem og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila.

Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu. Um er að ræða 100% stöðu í dagvinnu og er staðan laus frá 1. nóvember n.k.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfsmannaábyrgð, dagleg stjórnun starfsmanna og uppbyggingu mannauðs á deildinni

  • Ber ábyrgð á og stjórnar faglegri þróun, rekstri og starfsmannahaldi deildarinnar

  • Ber ábyrgð á gæðum þjónustunnar og tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt í samráði við forstöðulækna sviðsins

  • Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdarstjórnar sjúkrahússins

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi og starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Farsæl stjórnunareynsla

  • Þekking og reynsla af gæða- og umbótastarfi

  • Viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er æskileg

  • Reynsla af verkefnastjórnun og innleiðingu nýjunga er kostur

  • Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð

  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni

  • Góð íslenskukunnátta

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hulda Sigríður Ringsted

Framkvæmdastjóri hjúkrunar

Tölvupóstur: huldari@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri skurðlækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

11.08.2026

Umsóknarfrestur

21.08.2026