
Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmanneskja við skordýragreiningar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
25-75%
Starf skráð
26.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026
Aðstoðarmanneskja við skordýragreiningar
Náttúrufræðistofnun óskar eftir að ráða tímabundið í starf sérfræðings til að taka þátt í verkefnum stofnunarinnar á sviði smádýra. Starfið felur í sér skráningu og úrvinnslu gagna, rannsóknir og greiningarvinnu undir handleiðslu og í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga innan og utan stofnunar.
Um hlutastarf er að ræða en hlutfall og vinnutími getur verið sveigjanlegur eftir samkomulagi.
Starfsstöð er í Urriðaholti, Garðabæ. Ráðningatími er frá 15. ágúst til 15. desember 2026.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoð við vöktun og rannsóknir á sviði smádýra
Tegundagreining skordýra
Skráning í gagnagrunn
Vettvangsvinna
Önnur tilfallandi verkefni í samráði við stjórnendur
Hæfniskröfur
Þekking á smádýrafánu landsins og smádýragreiningum er æskileg
Menntun sem nýtist í starfi
Marktæk reynsla af vettvangsvinnu er kostur
Lipurð í mannlegum samskiptum og ríkur vilji til samstarfs innan og utan stofnunar
Sjálfstæði í vinnubrögðum og vandvirkni
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn
Ferilskrá
Staðfest afrit prófskírteina
Upplýsingar um umsagnaraðila
Stutt kynningarbréf þar sem áhuga fyrir starfinu er lýst og tiltekið hvað umsækjandi getur lagt af mörkum til auglýstra starfsþátta
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um niðurstöðu þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Öll kyn eru hvött til að sækja um störf hjá Náttúrufræðistofnun í samræmi við jafnréttisáætlun og jafnlaunastefnu stofnunar.
Um Náttúrufræðistofnun
Hjá Náttúrufræðistofnun starfa tæplega 80 manns við rannsóknir, kortlagningu og vöktun á náttúru landsins. Starfsandi er góður og heimilislegur, þar sem leitast er við að bjóða fjölskylduvænan vinnustað og heilsueflandi vinnuumhverfi. Við ráðningar í störf hjá Náttúrufræðistofnun er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Starfsstöðvar Náttúrufræðistofnunar eru sex talsins; í Garðabæ, á Akranesi, á Breiðdalsvík, í Mývatnssveit, á Raufarhöfn og á Akureyri.
Starfshlutfall er 25-75%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Náttúrufræðistofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðarmanneskja við skordýragreiningar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
25-75%
Starf skráð
26.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026