Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi

Áhugasamir og metnaðarfullir ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar óskast til starfa á legudeild lyndisraskana Kleppi. Deildin er opin 12 rúma legudeild og sinnir meðferð einstaklinga með lyndisraskanir og fjölþættan vanda. Deildin vinnur einnig í nánu samstarfi við meðferðarteymi göngudeildar lyndisraskana. Á deildinni er unnið fjölbreytt og sérhæft starf sem einkennist af góðum starfsanda, virkri og stöðugri framþróun og ótal tækifæri eru til að vaxa í starfi.

Við leitum eftir jákvæðum og ábyrgum einstaklingum með framúrskarandi samskiptahæfni. Viðkomandi þarf að búa yfir skapandi hugsun og hafa metnað og áhuga á að starfa við geðendurhæfingu. Við tökum vel á móti bæði nýútskrifuðum og reyndu fólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.

Um er að ræða 80-100% starf eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið verður frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og helgarvöktum. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Díönu deildastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur

  • Virk þátttaka í þverfaglegu teymi

  • Ýmis fjölbreytt verkefni sem starfsemi deildarinnar felur í sér

  • Fylgja sjúklingi eftir í daglegri virkni, framfylgja meðferðarsamningum og meðferðaráætlunum ásamt því að bera ábyrgð á ákveðnum skráningum

  • Stuðningur við athafnir dagslegs lífs

  • Taka þátt í meðferðarvinnu í samráði við teymi sjúklings

  • Taka þátt í og sjá um að fyrirliggjandi dagskrá deildar hverju sinni sé framfylgt

  • Stuðla að góðum starfsanda

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, svo sem á sviði hjúkrunar, uppeldis-, atferlis-, íþrótta- eða sálfræðimenntunar er kostur

  • Starfsreynsla af líkamlegri umönnun eða hjúkrun er kostur

  • Starfsreynsla innan geðþjónustu Landspítala er kostur

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og vilji til að vinna í þverfaglegu teymi

  • Stundvísi og áreiðanleiki

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli, viðbótar tungumálakunnátta kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Ráðgjafi, stuðningsfulltrúi, starfsmaður, teymisvinna

Tungumálahæfni: íslenska 4/5,

Staðsetning: Kleppsgarður, 104 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Díana Liz Franksdóttir

Tölvupóstur: dianaliz@landspitali.is

Sími: 824-5779 / 543-4359

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á legudeild lyndisraskana Kleppi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

07.08.2026

Umsóknarfrestur

17.08.2026