
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á dag- og göngudeild blóð-og krabbameinslækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026
Sjúkraliði á dag- og göngudeild blóð-og krabbameinslækninga
Laust er til umsóknar starf sjúkraliða á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga við Hringbraut.
Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með mannleg samskipti, sýnir hlýju og virðingu í samskiptum og nýtur þess að starfa í samhentu teymi. Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi, unnið er í dagvinnu, virka daga. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.
Deildin er dag- og göngudeild fyrir sjúklinga með blóðsjúkdóma og krabbamein. Á deildinni starfar 35 manna þverfaglegur hópur. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Aðstoð við innskrift sjúklinga
Umsjón með lager, pantanir og frágangur á vörum
Umsjón með skoli
Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
Framúrskarandi samstarfshæfni og frumkvæði í starfi
Faglegur metnaður og áhugi á krabbameinshjúkrun
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Íslensku- og enskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, ritari, skrifstofumaður, skrifstofustarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5
Starfsmerking: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, sjúkraliðanemi, hjúkrun, teymisvinna
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Sjúkraliðafélag Íslands Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert. is is
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði á dag- og göngudeild blóð-og krabbameinslækninga
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
10.06.2026
Umsóknarfrestur
22.06.2026