
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í gagnadeilingu og myndgagnavinnslu á röntgendeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026
Starfsmaður í gagnadeilingu og myndgagnavinnslu á röntgendeild
Röntgendeild Landspítala óskar eftir að ráða öflugan og þjónustulundaðan einstakling til starfa við gagnadeilingu, umsýslu myndgagna og þjónustu við starfsfólk og samstarfsaðila. Um er að ræða fjölbreytt og mikilvægt starf þar sem viðkomandi gegnir lykilhlutverki í miðlun myndrannsókna og samskiptum við heilbrigðisstofnanir innanlands og erlendis.
Við bjóðum upp á áhugavert og fjölbreytt starf á einni stærstu heilbrigðisstofnun landsins. Í starfinu felst tækifæri til að starfa í nánu samstarfi við sérfræðinga á sviði myndgreiningar, auk þess sem á deildinni er góður starfsandi og stuðningsríkt vinnuumhverfi.
Á myndgreiningardeild starfa á annað hundrað einstaklingar. m.a. læknar, geislafræðingar, lífeindafræðingar, náttúrufræðingar og sérhæft starfsfólk. Þar fer fram fjölbreytt rannsóknarstarfsemi í þágu þeirra sem nýta sér þjónustu Landspítala. Við leggjum ríka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart samstarfsfólki , skjólstæðingum sem og vinnustaðnum öllum auk góðra samskipta.
Helstu verkefni og ábyrgð
Gagnadeiling og miðlun myndrannsókna til annarra heilbrigðisstofnana innanlands og erlendis
Umsýsla og eftirlit með flutningi myndgagna í myndgeymslukerfum (PACS)
Skipulagning samráðsfunda fyrir lækna Landspítala
Samskipti við heilbrigðisstofnanir, lækna og aðra samstarfsaðila
Umsjón með tölvupósti deildarinnar og afgreiðsla fyrirspurna
Önnur tilfallandi verkefni tengd starfsemi deildarinnar
Hæfniskröfur
Góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný upplýsingakerfi
Reynsla af sambærilegum störfum í heilbrigðisþjónustu er kostur
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Mjög góð samskiptahæfni og þjónustulund
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Hæfni til að vinna sjálfstætt og forgangsraða verkefnum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, starfsmaður, skrifstofustörf, ritari, teymisvinna
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Sameyki Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. is is
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsmaður í gagnadeilingu og myndgagnavinnslu á röntgendeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026