
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Sjúkraliðar - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Komdu og vertu hluti af samheldnum hópi okkar á smitsjúkdómadeild í Fossvogi.
Við leitum að bæði reynslumiklum og nýútskrifuðum sjúkraliðum sem vilja vaxa í starfi og takast á við fjölbreytt og gefandi verkefni.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild, ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 80 einstaklingar í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingsmiðaða aðlögun.
Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði og eru störfin laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Þátttaka í fjölskylduhjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfni
Faglegur metnaður og áhugi á að öðlast færni í hjúkrun sjúklinga með smitsjúkdóma og annarra sem á deildinni dvelja
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi eða vottun um launað starfsnám ef sjúkraliðanemi í starfsnámi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, sjúkraliðanemi, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
20-100%
Starf skráð
21.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026