
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í félagsfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-75%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026
Doktorsnemi í félagsfræði
Laust er til umsóknar, tímabundið til þriggja ára, 70-75% starf doktorsnema við námsbraut í félagsfræði við Háskóla Íslands. Doktorsneminn mun vinna að rannsóknarverkefni á sviði félagsfræði frávikshegðunar (sociology of deviance) sem fjármagnað er af Rannsóknasjóði Háskóla Íslands. Verkefnið hefst í janúar 2027 og snýr að kenningum um félagslega stimplun og smán (stigma). Í verkefninu verður framkvæmd eigindleg (qualitative) rannsókn á reynslu einstaklinga af stimplun á opinberum vettvangi.
Doktorsneminn mun stunda rannsóknir á Íslandi en þó er mögulegt að víkka út verkefnið og vinna að því að hluta til erlendis. Dr. Jón Gunnar Bernburg, prófessor í félagsfræði verður aðalleiðbeinandi doktorsnemans og stýrir jafnframt rannsókninni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í rannsóknarvinnu í samstarfi við aðalleiðbeinenda.
Eigindleg gagnaöflun og greining, fyrst og fremst með viðtölum sem framkvæmd verða í trúnaði en líka með tilviksgreiningu á fjölmiðlaumfjöllun.
Miðlun rannsóknarniðurstaðna, einkum í formi doktorsritgerðar (greina í vísindatímaritum), en þó einnig í formi fyrirlestra á alþjóðlegum ráðstefnum og meðal almennings.
Skipulag vinnustofa í samvinnu við samstarfsteymi.
Hæfniskröfur
Meistarapróf í félagsfræði eða skyldum greinum með að lágmarki fyrstu einkunn. Umsækjandi skal hafa lokið prófi þegar starf hefst.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
Góð enskukunnátta.
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Ráðning er háð því að umsækjandi sæki formlega um doktorsnám í félagsfræði á Félagsvísindasviði og að umsóknin sé samþykkt af Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Skilyrði er að doktorsneminn sinni starfinu í Háskóla Íslands og búi á Íslandi á starfstímanum. Engu að síður þarf viðkomandi að geta sótt ráðstefnur erlendis vegna rannsóknarinnar. Doktorsneminn þarf að geta hafið störf sem fyrst og eigi síðar en 1. janúar 2027.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókninni:
Kynningarbréf (um það bil 2 blaðsíður) þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og hvað viðkomandi hefur fram að færa við mótun og vinnslu þess.
Ferilskrá þar sem fram kemur starfsreynsla, hæfni tengd verkefninu og ritaskrá ef við á.
Staðfest afrit af prófskírteinum (BA/BSc og MA/MSc).
Afrit af meistararitgerð eða rannsóknargreinum ef við á.
Tvö meðmælabréf og upplýsingar um hvernig nálgast megi umsagnaraðilana.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 70-75%
Umsóknarfrestur er til og með 04.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Doktorsnemi í félagsfræði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70-75%
Starf skráð
19.08.2026
Umsóknarfrestur
04.09.2026