Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á göngudeild lyflækninga Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á göngudeild lyflækninga Fossvogi

Laust er til umsóknar starf heilbrigðisritara/ skrifstofumanns á göngudeild lyflækninga A3 í Fossvogi. Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. Um er að ræða dagvinnustarf, virka daga, sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt verkefni.

Göngudeild A3 sinnir fjölbreyttum hópi skjólstæðinga og þar eru margar sérhæfðar einingar; göngudeild lungna, súrefnis, smitsjúkdóma og ofnæmis, lungnarannsókn og önnur sérhæfð teymi lungnasjúklinga. Á A3 starfa rúmlega 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi og nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Velkomið er að kíkja í heimsókn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og skráning sjúklinga sem koma í bókuð viðtöl

  • Innheimta sjúklingagjalda

  • Upplýsingagjöf

  • Símavarsla, bókanir og önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaramenntun, stúdentspróf og/ eða reynsla af ritarastörfum

  • Jákvæðni, þjónustulipurð og fagleg framkoma

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, skrifstofustörf, heilbrigðisritari, móttaka, ritari, skrifstofumaður

Staðsetning: Fossvogi, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Geirný Ómarsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: geirnyo@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á göngudeild lyflækninga Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

27.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026