Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Yfiriðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
29.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Yfiriðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri leitar eftir öflugum einstaklingi í 80-100% stöðu yfiriðjuþjálfa. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi dagvinnustarf og er staðan laus nú þegar eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfiriðjuþjálfi er verkstjóri og faglegur stjórnandi iðjuþjálfa. Hann hefur umsjón með sérhæfðri starfsemi. Hann tekur ákvarðanir um verkefni og faglega framþróun faggreinar í samráði við þjónustustjóra, með það að leiðarljósi að skjólstæðingar fái þá bestu þjónustu iðjuþjálfa sem kostur er á hverjum tíma.
Ábyrgð á tilteknum þáttum í starfsmannaumsjón deildarinnar
Ábyrgð á faglegri stjórnun í iðjuþjálfun á bráða- og endurhæfingardeildum
Dagleg verkstjórn og skipulag starfseminnar
Gæða- og verklagsstörf
Stefnumótun og framtíðarsýn
Er tengiliður við háskóla, hefur eftirlit með faglegri framþróun og leggur áherslur í sí- og endurmenntunarmálum.
Tekur þátt í öllum almennum störfum iðjuþjálfa og sinnir daglegum störfum gagnvart skjólstæðingum, aðstandendum og samstarfsfólki
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Löggilding til starfa sem iðjuþjálfi og gilt íslenskt starfsleyfi
Reynsla af bráða- og endurhæfingadeildum er kostur
Reynsla af stjórnunarstörfum er kostur
Færni til að geta unnið sjálfstætt á skipulagðan hátt
Leiðtogahæfni og góð hæfni í mannlegum samskiptum ásamt frumkvæði og metnaði í starfi
Færni í miðlun upplýsinga og gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Yfiriðjuþjálfi við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
29.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026