Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

06.08.2026

Verkefnisstjóri fjármála við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra fjármála hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Verkefnisstjórinn hefur það megin hlutverk að hafa umsjón með og yfirlit yfir fjármál og bókhald Menntavísindasviðs. Starfið heyrir undir rekstrarstjóra Menntavísindasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Daglegur fjármálarekstur t.d. utanumhald um innkaup, samþykkt reikninga, millifærslur, reikningagerð, leiðréttingar og gerð ferðaheimilda.

  • Að tryggja rétta skráningu fjárhagslegra upplýsinga og að bókhaldsgögn séu rétt skráð og uppfærð á hverjum tíma.

  • Gerð fjárhagsáætlunar Menntavísindasviðs og eftirfylgni í samráði við rekstrarstjóra.

  • Kostnaðargreining og verkefnisstjórn.

  • Upplýsingagjöf, gagnaúrvinnsla og þjónusta.

  • Uppgjör kennslu.

  • Aðkoma að fjárhagslegri umsýslu vegna rannsóknarstyrkja og rannsóknareikninga.

  • Þátttaka í öðrum fjármála- og stjórnsýsluverkefnum Menntavísindasviðs eftir þörfum.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskiptafræði, fjármála eða skyldum greinum. Meistarapróf er kostur.

  • Reynsla af fjármálaverkefnum, notkun bókhalds-, fjárhagsupplýsinga- og fjárhagsáætlunarkerfa.

  • Góð færni í Excel.

  • Góð íslensku- og ensku kunnátta, bæði í ræðu og riti.

  • Þjónustuvilji og lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eftir að ráðningarferli lýkur, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Starfsstöðin er á sviðsskrifstofu Menntavísindasviðs í Sögu við Hagatorg.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli ámálstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Svavar Jósefsson

Tölvupóstur: svavarjo@hi.is

Lára Rún Sigurvinsdóttir

Tölvupóstur: lararun@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála við Menntavísindasvið Háskóla Íslands

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

01.07.2026

Umsóknarfrestur

06.08.2026