Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í Tölvurannsóknadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026
Sérfræðingur í Tölvurannsóknadeild
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu (LRH) leitar eftir drífandi og lausnamiðuðum einstaklingi í starf sérfræðings í tölvurannsóknadeild Tæknideildar.
Tölvurannsóknadeild LRH sinnir fjölbreyttum stafrænum réttarrannsóknum fyrir öll lögregluembætti landsins. Deildin rannsakar og tryggir sönnunargögn sem kunna að finnast á hverskonar búnaði sem geyma gögn á stafrænu formi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir alla alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 500 á fjórum megin starfsstöðvum.
Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rannsóknir á haldlögðum tölvum, símum og öðrum miðlum sem geta geymt rafræn gögn.
Stjórnun tölvutengdra rannsókna á brotavettvangi.
Skýrslugerð vegna rannsókna og vitnisburður fyrir dómi þegar þörf er á.
Kynna starfsemina innan og utan lögreglu þegar þess er þörf.
Þátttaka í umbótaverkefnum Tölvurannsóknadeildar og þróun verkferla.
Tryggja fagleg gæði rannsókna og að málshraði sé í samræmi við markmið.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. menntun í tölvurannsóknum (Digital forensics) eða sambærilegt.
Aukin menntun sem nýtist í starfi t.d. meistaranám með tengingu við netbrota-, tölvu- og/eða lögreglurannsóknir er kostur.
Þekking og reynsla af rannsóknum á tölvum, símum, gagnageymslum og öðrum búnaði sem geyma gögn á rafrænu formi.
Góð hæfni til að vinna úr stafrænum gögnum og setja fram með skýrum hætti.
Mjög góð samskiptahæfni, þjónustulund, jákvæðni og sveigjanleiki.
Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði, sjálfstæði í starfi og lausnamiðuð vinnubrögð.
Með umsókn skal fylgja greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknarinnar og rökstyður hæfni sína í starfið.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.
Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsækjendum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Edda Björg Sigmarsdóttir
Staðgengill mannauðsstjóra
Tölvupóstur: edda.sigmarsdottir@lrh.is
Sími: 444-1000
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í Tölvurannsóknadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.07.2026
Umsóknarfrestur
10.08.2026