
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor á sviði félags- og/eða heilbrigðisþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026
Lektor á sviði félags- og/eða heilbrigðisþjónustu
Laust er til umsóknar 50% starf lektors á sviði félags- og/eða heilbrigðisþjónustu við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands. Lögð er áhersla á að viðkomandi búi yfir víðtækri þekkingu á velferðarmálum og hafi áhuga á akademísku starfi, kennslu og rannsóknum á sviði félagsráðgjafar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla í félagsráðgjöf
Rannsóknir á sérsviði viðkomandi
Leiðbeining nemenda við gerð lokaverkefna
Þátttaka í fræðilegri þróun deildarinnar
Stjórnun t.d. í formi nefndarsetu innan deildar
Hæfniskröfur
Meistarapróf til starfsréttinda í félagsráðgjöf auk þess að hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, sem staðfest er með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla
Starfsréttindi í félagsráðgjöf á Íslandi
Starfsreynsla á sviði félags- og/eða velferðarþjónustu
Reynsla af kennslu á háskólastigi er æskileg
Virkni í rannsóknum á fræðasviðinu, sem komi m.a. fram í birtingum á ritrýndum vettvangi
Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, ásamt leikni við að miðla þekkingu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt á 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir
Félag háskólakennara Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert. is is
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 04.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Freydís J Freysteinsdóttir
Tölvupóstur: fjf@hi.is
Halldóra F Sigurgeirsdóttir
Tölvupóstur: halldoraf@hi.is

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Lektor á sviði félags- og/eða heilbrigðisþjónustu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
04.08.2026