Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026

Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að drífandi og metnaðarfullum fagaðila til starfa í Geðheilsuteymi barna, ss. félagsráðgjafa, sálfræðingi eða annarri fagstétt. Við óskum eftir jákvæðum einstakling sem hefur áhuga á þverfaglegu teymisstarfi og þjónustu við fjölbreyttan hóp skjólstæðinga og fjölskyldur þeirra. Mikil áhersla er lögð á samvinnu í teyminu og gott samstarf við börn, ungmenni, fjölskyldur og önnur þjónustukerfi í nærumhverfi. Starfið er krefjandi, fjölbreytt og gefandi og býður upp á góð tækifæri til faglegrar þróunar.

Geðheilsuteymið veitir 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu sem sinnir börnum með geðrænan vanda sem þurfa meiri þjónustu en hægt er að veita í fyrstu línu heilsugæslunnar. Teymið er einnig ráðgefandi í bráðamálum. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN.

Starfið er fjölskylduvænt og býður upp á sveigjanleika sem styður við gott jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í uppbyggingu á geðheilbrigðisþjónustu við börn á þjónustusvæði HSN

  • Fræðsla, ráðgjöf og meðferð fyrir skjólstæðinga geðheilsuteymis, aðstandendur þeirra

  • Tengill í málefnum skjólstæðinga geðheilsuteymis

  • Frekari uppbygging gagnreyndra meðferðarúrræða í samráði við aðra starfsmenn teymis

  • Samvinna við aðrar fagstéttir¿

  • Samvinna við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur svo sem félags-, skóla- og barnaverndarþjónustur

  • Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisstarfsmaður með háskólamenntun og löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi

  • Jákvæð reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur

  • Greinagóð þekking á algengustu geðröskunum barna

  • Þekking á birtingarmyndum áfalla, félagslegra og geðrænna erfiðleika hjá börnum og unglingum er kostur

  • Þekking á frávikum í taugaþroska í samspili við geðræna erfiðleika er kostur

  • Reynsla af greiningu og gagnreyndri meðferð við geðröskunum barna

  • Reynsla af fjölskylduvinnu er kostur

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Jákvæðni, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Góð, almenn tölvukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

HSN hefur hlotið jafnlaunavottun og fengið heimild til að nota jafnlaunamerki Jafnréttisstofu. Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Alice Harpa Björgvinsdóttir

forstöðumaður sálfélagslegra þjónustu

Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is

Sími: 432 4970

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Fagaðili í geðheilsuteymi barna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

02.07.2026