Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026

Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli

Starf löglærðs fulltrúa í þinglýsingadeild Sýslumannsins á Suðurlandi er laust til umsóknar. Starfsstöð er á skrifstofu embættisins á Hvolsvelli.

Embætti sýslumanns á Suðurlandi er stjórnsýslu- og þjónustustofnun sem reist er á gömlum grunni og annast fjölþætt viðfangsefni framkvæmdarvalds ríkisins í héraði. Áherslur vinnustaðarins byggja á góðri þjónustu, skilvirku verklagi og öflugri liðsheild.

Leitað er að áreiðanlegum einstaklingi sem er reiðubúinn að leiða mikilvægan málaflokk í starfsemi sýslumanns og afla sér fjölbreyttrar reynslu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér umsjón og faglega ábyrgð á þinglýsingum við embættið ásamt því að annast daglega stjórn skrifstofunnar á Hvolsvelli. Fulltrúi sinnir upplýsingagjöf og leiðbeiningum við samstarfsfólk, viðskiptavini og hagsmunaaðila og vinnur að umbótaverkefnum í starfsemi embætta sýslumanna. Fulltrúinn hefur og með höndum verkefni er lúta að sáttamiðlun í landamerkjamálum.

Auk þess sinnir fulltrúi tilfallandi verkefnum á starfsstöð, sem falla undir önnur málefnasvið embættisins, svo sem lögbókendavottanir, móttöku viðskiptavina vegna dánarbúa, fjölskyldumála o.fl. Fulltrúi sinnir tilfallandi afleysingum fyrir fulltrúa annarra málaflokka embættisins, hvort heldur er á starfsstöðinni á Hvolsvelli eða öðrum skrifstofum embættisins.

Starfið heyrir undir sýslumann. Um fullt starf er að ræða og er það þegar laust. Upphaf starfstíma verður eftir samkomulagi.

Vakin er athygli á því að þann 1. janúar 2027 tekur til starfa sameinað embætti sýslumanns. Markmið sameiningar eru meðal annarra bætt þjónusta, aukin skilvirkni og efling starfsemi embættisins á landsbyggðinni. Sameiningin kann að hafa áhrif á verkefni og hlutverk fulltrúa, en starfsfólk embættanna sem er í föstu starfssambandi þegar lögin taka gildi, öðlast starf hjá hinu nýja embætti.

Hæfniskröfur

  • Embættis- eða meistarapróf í lögfræði og önnur skilyrði b.-f. liðar 2. mgr. 3.gr. sbr. 2. ml. 2. mgr. 5.gr. l. nr. 50/2014.

  • Þekking á verkefnum sýslumanna er kostur.

  • Góð þekking á þinglýsingum og/eða eignarétti er kostur.

  • Þekking á aðferðafræði sáttamiðlunar er kostur.

  • Geta til að vinna sjálfstætt og í teymum að greiningu og úrlausn lögfræðilegra álitaefna.

  • Stundvísi, auga fyrir smáatriðum, öguð og skilvirk vinnubrögð.

  • Frumkvæði, forystuhæfileikar og áhugi fyrir nýsköpun í starfi.

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.

  • Góð almenn tölvukunnátta er áskilin.

  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti er áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Umsókn um starfið þarf að fylgja afrit af prófskírteinum ásamt ítarlegri starfsferilskrá og upplýsingum um meðmælendur. Einnig kynningarbréf þar sem umsækjandi rökstyður hæfni sína í starfið. Horft verður til þess að umsækjendur falli sem best að þörfum starfstöðvarinnar og embættisins í heild. Við ráðningu verður tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Þórðardóttir

sýslumaður

Tölvupóstur: kristin.thordardottir@syslumenn.is

Sími: 4582800

Anna Lilja Ragnarsdóttir

staðgengill sýslumanns

Tölvupóstur: anna.lilja.ragnarsdottir@syslumenn.is

Sími: 4582800

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Suður­landi

Upplýsingar um starf

Starf

Löglærður fulltrúi á Hvolsvelli

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.06.2026

Umsóknarfrestur

13.07.2026