
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á hjartadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026
Hjúkrunarfræðingur á hjartadeild
Laus eru til umsóknar störf hjúkrunafræðinga á hjartadeild Landspítala. Við viljum ráða framsækna og metnaðarfulla hjúkrunarfræðinga með brennandi áhuga á hjúkrun hjartasjúklinga. Unnið er í vaktavinnu og ráðið í störfin frá 1. september 2026 eða eftir samkomulagi.
Hjartadeild er 37 rúma legudeild sem tilheyrir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og er staðsett á 4. hæð á Landspítala við Hringbraut. Deildin er eina sérhæfða hjartadeildin á landinu og starfar þar öflugur og áhugasamur hópur hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Góður starfsandi er ríkjandi sem og mikill faglegur metnaður og tækifæri til að vaxa í starfi. Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju samstarfsfólki og veita góða einstaklingshæfða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
Vera virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu verkefna á deild
Fylgjast með nýjungum í hjartahjúkrun
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Góð samskiptahæfni og áhugi á að starfa í teymi
Hæfni til að vinna vel undir álagi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á hjartadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
22.06.2026
Umsóknarfrestur
06.07.2026