Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á fjármálasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

06.07.2026

Sérfræðingur á fjármálasviði

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) leitar að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi til liðs við deild reikningshalds og fjárreiðna. Hjá okkur starfar öflugur hópur sem vinnur saman að því að styðja við öfluga heilbrigðisþjónustu með faglegri fjármálastjórnun. Sviðið er staðsett í Álfabakka 16.

Í teyminu er lögð áhersla á samstarf, traust og góðan starfsanda.

Frekari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Færsla bókhalds og skráning í bókhaldskerfi ríkisins

  • Afstemmingar, frágangur og skil á virðisaukaskatti

  • Greiningarvinna og úrvinnsla gagna

  • Samskipti við Fjársýslu ríkisins, lánadrottna og innri aðila

  • Þátttaka í umbótaverkefnum og rafrænum ferlum

  • Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt beiðni deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • BSc í viðskiptafræði eða sambærilega menntun er skilyrði

  • Reynsla og góð þekking á bókhaldi er skilyrði

  • Góð almenn tölvufærni, talnagleggni og góð þekking í Excel

  • Þekking og reynsla af Orra bókhaldskerfi er kostur

  • Góð samskiptahæfni og þjónustulund

  • Skipulagshæfni, nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðssviðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jóhanna Kolbrún Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: johanna.kolbrun.gudmundsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513 5011

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á fjármálasviði

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

06.07.2026