Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skólinn við Ármúla

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsmálafulltrúi Fjölbrautaskólans við Ármúla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Félagsmálafulltrúi Fjölbrautaskólans við Ármúla

Fjölbrautaskólinn við Ármúla óskar eftir að ráða félagsmálafulltrúa í 50% starf næsta skólaár.

Við leitum eftir hugmyndaríkum einstaklingi sem hefur áhuga á að efla félagslíf nemenda, styðja við vellíðan þeirra og halda utan um viðburði nemendafélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stuðla að virku, fjölbreyttu og jákvæðu félagslífi nemenda.

  • Vera nemendum til ráðgjafar um félagsstörf á vegum Nemendafélags FÁ.

  • Skipuleggja umsjón og eftirlit með viðburðum.

  • Hvetja nemendur til þátttöku í félagsstarfi og efla samfélagsanda innan skólans.

  • Styðja við að félagslíf skólans stuðli að vellíðan og virkri þátttöku nemenda.

  • Sitja skólastjórnarfundi þar sem farið er yfir starf nemendafélagsins og hagsmunamál nemenda.

  • Vera tengiliður milli nemendafélagsins og stjórnenda.

  • Önnur verkefni í samráði við skólameistara.

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði tómstunda-, félags eða uppeldisfræða

  • Hugmyndaauðgi og frumkvæði.

  • Góð samskiptahæfni, hæfni og vilji til að vinna með ungu fólki.

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.

  • Hafa unnið með ungu fólki.

  • Hafa góða tölvukunnáttu og þekkingu á upplýsingartækni, m.a. kunnáttu og þekkingu á Office365 og þeim samfélagsmiðlum sem nemendur á framhaldsskólaaldri nýta mest.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi.

Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.

Á heimasíðu skólans, www.fa.is, eru upplýsingar um skólann og starfsemi hans.

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Magnús Ingvason

skólameistari

Tölvupóstur: mi@fa.is

Sími: 8627610

Kristrún Birgisdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: kb@fa.is

Sími: 8482255

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skólinn við Ármúla

Upplýsingar um starf

Starf

Félagsmálafulltrúi Fjölbrautaskólans við Ármúla

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026