Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja þjónustu frá grunni og hafa áhrif á þróun hennar? Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum hjúkrunarfræðingum til starfa á nýrri bráðamatsdeild.

Bráðamatsdeild sinnir fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks og koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans.

Hér er hægt að horfa á stutt myndband um bráðamatsdeildina.

Hvers vegna að vinna á bráðamatsdeild?

  • Einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu nýrrar þjónustu þar sem gæði og fagmennska eru í forgrunni.

  • Áhersla á öflugt, þverfaglegt teymi.

  • Fjölbreytt og krefjandi verkefni sem efla klíníska færni.

  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á þróun verklags og þjónustu.

  • Góðir möguleikar til starfsþróunar og símenntunar.

Unnið er í vaktavinnu og er upphaf starfa sem og starfshlutfall samkomulag.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga.

  • Taka virkan þátt í greiningu, meðferð og eftirfylgd sjúklinga í samstarfi við þverfaglegt teymi.

  • Þróun ferla og verkefna á nýrri deild.

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við aðrar deildir.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi.

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi.

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar.

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi.

  • Góð íslenskukunnátta er æskileg.

  • Reynsla af bráðaþjónustu er æskileg.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun,

Tungumálahæfni: Íslenska 3/5

Staðsetning: Fossvogur, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hrönn Guðbjartsdóttir

Tölvupóstur: hronngudb@landspitali.is

Sími: 762-1759

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

19.06.2026

Umsóknarfrestur

29.06.2026