
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur, Ísótópastofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026
Lífeindafræðingur, Ísótópastofu
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum lífeindafræðingi til að ganga til liðs við öflugt teymi okkar á Ísótópastofu Landspítala, þar sem sinnt er læknisfræðilegri myndgreiningu og meðferðum.
Um er að ræða spennandi starf í sérhæfðu umhverfi þar sem unnið er með háþróaða tækni við rannsóknir og greiningu. Starfið krefst mikillar nákvæmni, vandaðra vinnubragða og góðrar samvinnu við sjúklinga. Viðkomandi mun vinna náið með aðstoðardeildarstjóra Ísótópastofu, læknum deildarinnar og læknisfræðilegum eðlisfræðingi.
Á deildinni er lögð áhersla á öryggi, jafnrétti, ábyrgan rekstur, góðan starfsanda og nýliðun í stéttinni. Þá leggjum við sérstaka áherslu á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart vinnustaðnum og samstarfsfólki.
Ísótópastofa er sú eina á landi sem sinnir ísótóparannsóknum, þar með talið jáeindaskannarannsóknum, og því fáum við fólk til okkar allstaðar af landinu. Einnig fara þar fram meðferðir með geislavirkum efnum.
Lögð er áhersla á gott samstarf innan deildarinnar og virka samvinnu við aðrar einingar spítalans til að tryggja góða þjónustu við sjúklinga.
Við hvetjum áhugasama lífeindafræðinga til að sækja um og taka þátt í að þróa og efla þjónustu okkar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur og framkvæmd ísótóparannsókna
Sérhæfð verkefni eftir atvikum sem heyra undir starfsemi deildar
Virk þátttaka í gæðastarfi s.s. við gæðamælingar geislavirkum lyfjum
Stuðla að góðri þjónustu við sjúklinga, þar sem stór hluti starfsins sjúklingamiðaður og mikil áheyrsla er að veita sjúklingum góða þjónustu
Hæfniskröfur
Starfsleyfi lífeindafræðings
Mjög góð samskiptahæfni og fagleg framkoma gagnvart þjónustuþegum og öllu samstarfsfólki
Hæfni, vilji og geta til starfa í teymi
Stundvísi og áreiðanleiki
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Frumkvæði og skipulagsfærni
Viðhalda faglegri þekkingu sinni og sýna faglegan metnað. Við sí- og endurmenntun skal lögð áhersla á sérhæfingu viðkomandi einingar
Ekki eru gerðar kröfur um fyrri reynslu af ísótóparannsóknum. Þjálfun verður í boði fyrir réttan aðila.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Lífeindafræðingur,
Tungumálahæfni: íslenska 3/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Ólöf Þórsdóttir
Tölvupóstur: gudol@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Lífeindafræðingur, Ísótópastofu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
18.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026