
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði í vaktavinnu - Vöknun Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
29.06.2026
Sjúkraliði í vaktavinnu - Vöknun Hringbraut
Við leitum eftir metnaðarfullum sjúkraliða til starfa á vöknun við Hringbraut. Í boði er starf á frábærum vinnustað þar sem samvinna, faglegt starf og öryggi sjúklinga eru höfð að leiðarljósi. Unnið er í vaktavinnu skv. vaktaskipulagi deildarinnar. Starfið er laust frá 1. ágúst 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.
Á vöknun við Hringbraut og í Fossvogi starfa 6 sjúkraliðar og um 40 hjúkrunarfræðingar við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum. Vöknun hefur aðsetur á þremur stöðum, E6 Fossvogi, 12A Hringbraut og 23A Kvennadeild. Deildin þjónar börnum og fullorðnum eftir svæfingar og slævingar við skurðaðgerðir og önnur inngrip. Deildin er opin allan sólarhringinn, flestir sjúklingar koma eftir skipulagðar aðgerðir á dagvinnutíma, en deildin tekur einnig á móti sjúklingum eftir bráðaaðgerðir á kvöldin, nóttunni og um helgar. Vöknun heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu.
Boðið er upp á einstaklingshæfða aðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun sjúklinga eftir skurðaðgerðir og önnur inngrip
Þátttaka í teymisvinnu og umbótastarfi
Þátttaka í þróun hjúkrunar á vöknun
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góð Íslenskukunnátta er áskilin
Færni í teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna, umbótastarf
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.06.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði í vaktavinnu - Vöknun Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
29.06.2026