
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Firði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-60%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
10.07.2026
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Firði
Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?
Heilsugæslan Firði leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf en um er að ræða ábyrgðarmikil og krefjandi verkefni fyrir einstakling sem hefur áhuga á nýsköpun og þróun innan heilsugæslu. Félagsráðgjafi starfar í þverfaglegu teymi með læknum, hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum og öðru fagfólki í fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín.
Um er að ræða 50 - 60% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1.september, eða eftir nánara samkomulagi.
Heilsugæslan er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni þar sem mætt er ólíkum þörfum notenda í nærumhverfi þeirra og þeim veittar leiðbeiningar inn í önnur úrræði heilbrigðiskerfisins eftir þörfum. Unnið er markvisst að þróun þjónustu með það að leiðarljósi að bæta þjónustu við skjólstæðinga
Heilsugæslan Firði býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi og hjá okkur ríkir góður starfsandi.
Til greina getur komið að ráða tímabundið áhugasaman reynsluminni félagsráðgjafa í ábyrgðarminna starf fáist ekki félagsráðgjafi með reynslu í starfið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum
Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum
Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga
Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.
Hæfniskröfur
Starfsleyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi
Hefur að jafnaði a.m.k. 2 ára starfsreynslu í faggreininni
Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
Góð íslenskukunnátta skilyrði
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdarstjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 50-60%
Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Firði
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
50-60%
Starf skráð
19.06.2026
Umsóknarfrestur
10.07.2026