Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í endurhæfingarlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

24.06.2026

Sérfræðilæknir í endurhæfingarlækningum

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í endurhæfingarlækningum við endurhæfingardeild Landspítala á Grensási. Til greina kæmi að ráða í starfið sérfræðilækni úr öðrum sérgreinum með reynslu af endurhæfingarlækningum og þá helst taugaendurhæfingu. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs og er starfið laust frá 1. júlí 2026.

Endurhæfingardeild Landspítala Grensás er staðsett við Álmgerði 1 í Reykjavík. Á Grensási er veitt frumendurhæfing eftir erfið veikindi og slys. Megináhersla er á taugaendurhæfingu svo sem endurhæfingu eftir heilablóðföll, heilaskaða og mænuskaða. Á Grensás er rekin bæði sólarhringsdeild og dagdeild. Sérhæfð síspennumeðferð er veitt á göngudeild auk almennrar göngudeildar endurhæfingarlækninga.

Starfsánægja er mikil og starfsmannavelta lítil, þetta er því dýrmætt tækifæri til að kynnast öflugri teymisvinnu í þverfaglegu umhverfi. Síðastliðin ár hefur mikil uppbygging verið í starfseminni, þjálfunarsundlaug verið endurgerð og hannaður meðferðargarður við húsið. Glæsileg viðbygging verður opnuð árið 2027 og verður öll aðstaða þar eins og best verður á kosið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna á legudeild, dagdeild og göngudeild, ásamt vaktþjónustu við endurhæfingardeild Landspítala Grensás

  • Veita ráðgjöf við aðrar deildir Landspítala og aðrar sjúkrastofnanir

  • Þátttaka í menntun læknanema og sérnámslækna

  • Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi

  • Íslenskukunnátta skilyrði

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar

  • Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

  • Faglegur metnaður

  • Hæfni og geta til að starfa í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: íslenska 4/5,

Staðsetning: Álmgerði, 108 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Magdalena Ásgeirsdóttir

Yfirlæknir, endurhæfingarlækningar

Tölvupóstur: magdas@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í endurhæfingarlækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

24.06.2026