Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í fjölmiðlafræði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

31.07.2026

Aðjúnkt í fjölmiðlafræði

Félagsvísindadeild, Hug- og félagsvísindasvið, Háskólinn á Akureyri

Háskólinn á Akureyri auglýsir laust starf aðjúnkts í fjölmiðlafræði við Félagsvísindadeild, (eitt 100% starf eða tvö 50% störf).

Leitað er að umsækjanda með starfsreynslu úr íslenskum fjölmiðlum, sem hefur áhuga á að taka þátt í kennslu á námsbraut í fjölmiðlafræði. Sérstaklega er hvatt til umsókna frá einstaklingum með reynslu af blaðamennsku, stafrænum miðlum, samfélagsmiðlum, framleiðslu fjölmiðlaefnis eða stjórnun fjölmiðla.

Námið leggur sérstaka áherslu á að tengja faglega fjölmiðlareynslu og fræðilega kennslu.

Sá sem ráðinn verður mun taka þátt í kennslu námskeiða sem tengjast samtímafjölmiðlum og breytingum í fjölmiðlaumhverfi, þar á meðal þróun stafrænnar miðlunar og nýrrar tækni.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar 2027 eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sá einstaklingur sem ráðinn verður mun meðal annars:

  • kenna námskeið í fjölmiðlafræði

  • miðla faglegri reynslu úr íslenskum fjölmiðlum í kennslu og þróun námskeiða

  • taka þátt í þróun kennslu um fjölmiðlaumhverfi samtímans, þar á meðal stafræna miðla, samfélagsmiðla, útvarp og hlaðvarp

  • taka þátt í fræðasamfélagi námsins

  • stunda sjálfstæðar rannsóknir á sviði fjölmiðla og samskipta

Kennsla við Háskólann á Akureyri fer að stórum hluta fram í sveigjanlegu námi, með reglulegum staðlotum.

Starfsstöðin er á Akureyri.

Næsti yfirmaður er forseti Félagsvísindadeildar.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu hafa:

  • meistaragráðu í fjölmiðlafræði, blaðamennsku, boðmiðlun eða skyldu fagi

  • umtalsverða starfsreynslu í íslenskum fjölmiðlum, t.d. blaðamennsku, útvarpi eða sjónvarpi, stafrænum miðlum eða af fjölmiðlafyrirtækjum

  • geta sýnt fram á hæfni til að miðla faglegri þekkingu í kennslu

Eftirfarandi telst kostur:

  • kennslureynsla á háskólastigi eða í faglegu námsumhverfi

  • reynsla af stafrænum miðlum, samfélagsmiðlum eða nýrri miðlunartækni

  • víðtæk tengsl innan íslensks fjölmiðlaumhverfis

  • Umsækjendur skulu hafa góða samskipta- og samstarfshæfni.

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti er nauðsynleg.

Umsóknargögn

  • Umsókn skal innihalda:

  • ferilskrá

  • kynningarbréf þar sem umsækjandi lýsir áhuga sínum á starfinu og viðeigandi reynslu

  • afrit af prófskírteinum

  • gögn sem staðfesta starfsreynslu í fjölmiðlum

  • nöfn og tengiliðaupplýsingar tveggja umsagnaraðila

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Umsóknir verða afgreiddar samkvæmt reglum um ráðningar við Háskólann á Akureyri.

Ófullnægjandi umsóknir verða ekki teknar til greina.

Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.

Háskólinn á Akureyri er jafnréttissinnaður vinnustaður og hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Markus Hermann Meckl

forseti Félagsvísindadeildar

Tölvupóstur: markus@unak.is

Guðbjörg Hildur Kolbeins

brautarstjóri námsbrautar í fjölmiðlafræði

Tölvupóstur: ghk@unak.is

Þjónustuaðili

Háskólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Aðjúnkt í fjölmiðlafræði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

31.07.2026