
Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt í líftækni
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026
Aðjúnkt í líftækni
Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf aðjúnkts í líftækni við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri.
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2026
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er að öflugum einstaklingi til að sinna kennslu í líftækni og tengdum greinum við Auðlindadeild og stunda rannsóknir á því sviði, auk þróunar náms á grunnstigi við deildina. Rannsóknaáherslur skulu vera á sviði líftækni, með áherslu á líftæknilega örverufræði. Helstu verkefni eru verkleg og bókleg kennsla í sérgreinum námsbrautarinnar, og rannsóknir á sviði líftækni og líftæknilegrar örverufræði. Næsti yfirmaður er forseti Auðlindadeildar. Starfsstöðin er á Akureyri.
Hæfniskröfur
Menntunarkröfur
Grunnmenntun (BSc) í líftækni eða tengdum greinum
Meistarapróf (MSc) á sviði líftækni eða tengdum greinum sem nýtist í starfi.
Hæfnikröfur
Reynsla af kennslu á háskólastigi, með sérstaka áherslu á verklega kennslu í grunnnámi.
Að geta skipulagt og annast öflugt kennslustarf í grunnnámi í líftækni.
Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, góðri færni í að miðla þekkingu og skipulagshæfni.
Gott vald á íslensku og ensku, jafnt í töluðu sem rituðu máli.
Umsókn skal fylgja:
Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil og kennslureynslu.
Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Staðfest afrit af prófskírteinum, á íslensku eða ensku.
Tilnefna skal tvo meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður umsækjanda í núverandi eða fyrra starfi.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingu, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 694/2022. Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir auðlindadeildar. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Brynjar Karlsson
forseti Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs
Tölvupóstur: brynjark@unak.is
Sími: 4608451

Þjónustuaðili
Háskólinn á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Aðjúnkt í líftækni
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026