Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í landupplýsingakerfum hjá Landi og skógi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Sérfræðingur í landupplýsingakerfum hjá Landi og skógi

Land og skógur óskar eftir að ráða öflugan sérfræðing í landupplýsingateymi stofnunarinnar. Leitað er að einstaklingi með áhuga á landupplýsingum, gagnavinnslu og þróun stafrænna lausna sem styðja við fjölbreytt aðgerða- og vöktunarverkefni um land allt.

Starfið heyrir undir sviðið Rekstur, fjármál og stafræn þróun þar sem landupplýsingateymið gegnir lykilhlutverki í þróun, rekstri og miðlun landupplýsinga innan stofnunarinnar. Um er að ræða fjölbreytt starf sem felur í sér uppbyggingu landupplýsingakerfa, þróun gagnasöfnunarferla, greiningu gagna og stuðning við verkefni á sviði skógræktar, landgræðslu og annarra aðgerða sem Land og skógur ber ábyrgð á.

Landupplýsingar gegna sífellt mikilvægara hlutverki í starfsemi Lands og skógar og eru grunnur að skráningu, vöktun, greiningu og miðlun upplýsinga um land og gróðurauðlindir Íslands. Gögnin styðja bæði daglega framkvæmd verkefna og stefnumótun á landsvísu. Starfið býður því upp á tækifæri til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu stafrænna lausna sem hafa raunveruleg áhrif á verkefni stofnunarinnar og nýtingu mikilvægra upplýsinga um landið allt.

Starfsstöð er í Reykjavík. Um er að ræða tveggja ára ráðningu með möguleika á framlengingu, þar sem unnið er að áframhaldandi uppbyggingu og þróun landupplýsingalausna innan Lands og skógar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun og uppbygging landupplýsingalausna sem styðja við verkefni Lands og skógar.

  • Uppsetning og þróun lausna fyrir gagnaöflun og vettvangsskráningar.

  • Umsjón með landfræðilegum gögnum, gagnagæðum og gagnaflæði.

  • Vinnsla, greining og framsetning landupplýsinga og annarra gagna.

  • Þróun og viðhald kortasjáa, mælaborða og annarra veflausna.

  • Samræming og miðlun landupplýsinga innan stofnunarinnar.

  • Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk við notkun landupplýsingakerfa og tengdra lausna.

  • Þátttaka í þróun og viðhaldi stafrænna lausna fyrir vettvangsskráningar og vöktun.

  • Samstarf við sérfræðinga og verkefnastjóra við framkvæmd, vöktun og skráningu verkefna.

  • Tilfallandi verkefni innan landupplýsingateymis.

Landupplýsingateymið þróar og rekur stafrænar lausnir sem styðja við skráningar, vöktun og framkvæmd verkefna Lands og skógar um allt land. Starfið snýr að uppbyggingu landupplýsingakerfa, þróun gagnasöfnunarferla, vinnslu og greiningu gagna ásamt miðlun upplýsinga til starfsfólks og samstarfsaðila.

Í starfinu er unnið náið með sérfræðingum stofnunarinnar að innleiðingu og notkun landupplýsingalausna, uppsetningu vettvangskerfa fyrir gagnaöflun, samræmingu gagnasafna og þróun nýrra stafrænna verkferla. Land og skógur styðst við ArcGIS umhverfi ESRI þar sem ArcGIS Enterprise og ArcGIS Online gegna lykilhlutverki í gagnasöfnun, miðlun og rekstri landupplýsingalausna.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði landupplýsinga, landfræði, umhverfisfræða, verkfræði, tölvunarfræði eða sambærilegra greinum.

  • Þekking á eða reynsla af landupplýsingakerfum og landfræðilegum gögnum.

  • Góð greiningarhæfni og geta til að vinna með gögn og upplýsingar.

  • Frumkvæði, lausnamiðuð hugsun og geta til að vinna sjálfstætt.

  • Góð samskiptahæfni og reynsla af samstarfi í teymi.

  • Geta til að koma upplýsingum og niðurstöðum á framfæri á skýran og skiljanlegan hátt.

  • Góð skipulagshæfni og hæfni til að vinna að fjölbreyttum verkefnum.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Kostur er ef umsækjandi hefur reynslu eða þekkingu á:

  • ArcGIS lausnum frá ESRI, svo sem ArcGIS Pro, ArcGIS Enterprise, ArcGIS Online, Survey123 eða Field Maps.

  • Landfræðilegum greiningum og framsetningu landupplýsinga.

  • Gagnavinnslu, gagnagrunnum eða gagnastjórnun.

  • Veflausnum, forritun eða sjálfvirknivæðingu vinnsluferla.

  • Fjarkönnun, loftmyndum eða drónagögnum.

  • Vinnu við gagnaöflun, vöktun eða skráningarverkefni.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um er að ræða 100% stöðu sem hentar öllum kynjum. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt fylgibréfi þar sem gert er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu ásamt afriti af prófskírteinum. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim ásamt innsendum gögnum og umsögnum umsagnaraðila. Tekið er mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar við ráðningu.

Land og skógur er þekkingarstofnun á sviði gróður- og jarðvegsauðlinda og gegnir mikilvægu rannsókna-, eftirlits- og fræðsluhlutverki við að vernda, endurheimta og bæta þessar auðlindir Íslands með uppgræðslu lands, ræktun nýrra skóga og með því að stuðla að sjálfbærri landnýtingu.

Markmið Lands og skógar er að vera eftirsóttur vinnustaður fyrir starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Þar er starfsfólki búin góð vinnuaðstaða, greiður aðgangur að upplýsingum og fjölbreyttir möguleikar á símenntun. Land og skógur hefur innleitt græn skref í ríkisrekstri. Þá hefur stofnunin sett sér umhverfis- og loftslagsáætlun með tímasettum markmiðum ásamt áætlunum um réttindi, vernd og ábyrgð starfsfólks, s.s. áætlanir um áreitni og einelti ásamt viðbrögðum við slíku.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gunnlaugur Guðjónsson

sviðstjóri reksturs, fjármála og stafrænnar þróunar

Tölvupóstur: gunnlaugur.gudjonsson@landogskogur.is

Sími: 570 5580

Atli Guðjónsson

teymisstjóri landupplýsinga

Tölvupóstur: atli.gudjonsson@landogskogur.is

Sími: 570 5568

Þjónustuaðili

Land og skógur

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í landupplýsingakerfum hjá Landi og skógi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026