Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir umsjónarmanni fasteignar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir umsjónarmanni fasteignar

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir umsjónarmanni fasteignar frá og með 1. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felast fjölbreytt verkefni; umsjón með húsinu og allt sem því fylgir, s.s. ýmis hússtjórnarkerfi, þjónusta við nemendur og starfsmenn, uppröðun og tilfærsla húsgagna, umsjón með ræstingum, smáviðgerðir, innkaup og sendiferðir. Einnig að vera tengiliður við kerfisstjóra skólans og annað sem til fellur í samstarfi við stjórnendur.

Hæfniskröfur

Leitað er að starfsmanni með menntun og/eða reynslu sem nýtist í starfinu. Hann þarf að vera vel að sér í alls kyns tölvu- og tæknimálum, hafa mikla færni í samskiptum, hafa frumkvæði og vera sjálfstæður í vinnubrögðum. Þarf að vera fljótur að tileinka sér nýjungar.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum, starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsækjendur þurfa að skila inn hreinu sakavottorði skv. lögum nr. 92/2008. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema að umsækjandi ákveði annað.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er áhugasamt fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.

Frekari upplýsingar um skólann og stefnur má finna á vef skólans.

Starfshlutfall er 75-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Arnar Ingason

Tölvupóstur: kristjan@fmos.is

Sími: 6952800

Bergþóra Hlín Arnórsdóttir

Tölvupóstur: ba@fmos.is

Sími: 4128500

Þjónustuaðili

Framhalds­skólinn í Mosfellsbæ

Upplýsingar um starf

Starf

Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ auglýsir eftir umsjónarmanni fasteignar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

75-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026