Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Húsnæð­is-, mannvirkja- og skipu­lags­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði brunavarna og slökkviliða - Sauðárkróki eða Akureyri

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Sérfræðingur á sviði brunavarna og slökkviliða - Sauðárkróki eða Akureyri

Hefur þú brennandi áhuga á brunamálum? Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings í teymi brunavarna og slökkviliða. Starfsstöð er á Sauðárkróki eða Akureyri.

Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í öflugu og samheldnu teymi sem sinnir samræmingar- og leiðbeinandi hlutverki á sviði brunavarna og slökkviliða. Teymið samþykkir brunavarnaáætlanir sveitarfélaga, hefur eftirlit með slökkviliðum, veitir leiðbeiningar um lögbundnar kröfur, sinnir rannsóknum, fræðslu og forvarnarstarfi á sviði brunavarna. Þá annast teymið útgáfu leyfa og ber ábyrgð á starfrækslu Brunamálaskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning og umsjón með öllu námi Brunamálaskólans

  • Mat á fræðsluþörfum slökkviliðsmanna og námsmat

  • Gæðaeftirlit með námi skólans

  • Þátttaka í fagráði Brunamálaskólans

  • Umsjón með gerð leiðbeininga fyrir slökkvilið

  • Umsjón með úttektum á slökkviliðum, búnaði og eftirfylgni

  • Samskipti við hagsmunaaðila og svörun fyrirspurna

  • Ýmis önnur verkefni sem starfsmanna verða falin

Hæfniskröfur

  • Reynsla og þekking af starfsemi slökkviliða og eldvarnareftirlits

  • Kennaramenntun eða önnur reynsla af fræðslu er kostur

  • Hæfni og reynsla af skipulagningu fræðsluefnis

  • Þekking og reynsla af starfi innan opinberrar stjórnsýslu er kostur

  • Reynsla af gæðaeftirliti og úttektum er kostur

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og jákvætt viðhorf

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Um fullt starf er að ræða og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í hálft ár frá því að frestur rennur út.

Lögð er rík áhersla á fjölbreytni og við hvetjum alla áhugasama einstaklinga til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Regína Valdimarsdóttir

framkvæmdastjóri

Tölvupóstur: Regina.Valdimarsdottir@hms.is

Elín Dögg Ómarsdóttir

sérfræðingur í mannauðsmálum

Tölvupóstur: elin.omarsdottir@hms.is

Þjónustuaðili

Húsnæð­is-, mannvirkja- og skipu­lags­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur á sviði brunavarna og slökkviliða - Sauðárkróki eða Akureyri

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026