Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Vilt þú verða hluti af öflugum hópi hjúkrunarfræðinga á Upplýsingamiðstöð HH?

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir hjúkrunarfræðingum til starfa við Upplýsingamiðstöð HH. Um er að ræða tímabundin störf til eins árs í dagvinnu eða vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf 1. september nk. eða eftir nánara samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingum sem eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Upplýsingamiðstöðin leggur áherslu á þverfaglegt samstarf og góða teymisvinnu.

Ef þú hefur áhuga á fjölbreyttri vinnu og framþróun í heilsugæslunni þá hvetjum við þig til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita ráðgjöf og forflokka í síma og á netspjalli

  • Sinna ferðamannaheilsuvernd

  • Önnur þróunarverkefni í fjarheilbrigðisþjónustu innan heilsugæslunnar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagningarhæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla af heilsugæslu er æskilegt

  • Reynsla af störfum á heilbrigðisstofnun á landsbyggðinni er kostur

  • Mikill sveigjanleiki og samskiptahæfni

  • Geta til að vinna undir álagi

  • Íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti skilyrði

  • Góð tölvukunnátta skilyrði

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Rós Kjartansdóttir

Tölvupóstur: ingibjorg.ros.kjartansdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-6400

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Upplýsingamiðstöð HH

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026