Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Sálfræðingur
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa sálfræðinga. Um er að ræða tvö stöðugildi.
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.
Staðan er hluti af sálfélagslegri þjónustu HSS, sem býður upp á mat og meðferð fyrir börn, unglinga og fullorðna. Lögð er áhersla á að þróa þjónustuna í samræmi við geðheilbrigðisáætlun og leitum við því að metnaðarfullum sálfræðingi, sem hefur áhuga á að taka þátt í þeirri þróun með okkur. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sálfræðiþjónusta fyrir fullorðna og börn
Greining og mat á geðrænum vanda
Gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf
Námskeiðahald
Teymisvinna
Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir og félagsþjónustu
Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu HSS.
Hæfniskröfur
Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi
Góð íslenskukunnátta
Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við algengustu geðröskunum fullorðinna
Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna er nauðsynleg
Reynsla af meðferð barna er nauðsynleg
Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningatækja
Það er lögð áhersla á sjálfstæði og frumkvæði í starfi, auk samskiptahæfni og sveigjanleika
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Inga Guðlaug Helgadóttir
Tölvupóstur: inga.g.helgadottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Sálfræðingur
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026