Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri/sérfræðingur
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
16.06.2026
Verkefnastjóri/sérfræðingur
Þjónustusvið Vegagerðarinnar leitar eftir öflugum einstaklingi til að sinna verkefnastjórn og sérfræðiráðgjöf á vegaþjónustudeild. Starfsmaður gegnir hlutverki öryggisfulltrúa jarðganga. Vegagerðin er ábyrgðaraðili 12 jarðganga á Íslandi og er ábyrgð á daglegum rekstri þeirra á höndum Vegagerðarinnar á viðkomandi svæði. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber ábyrgð á öryggismálum og samræmingu á rekstri allra jarðganga. Þjónustusvið Vegagerðarinnar ber einnig ábyrgð á samræmingu og þróun í rekstri vegakerfisins auk upplýsingagjafar því tengdu.
Á þjónustusviði starfa um 55 starfsmenn á fjórum deildum sem eru: Almenningssamgöngur, tækjabúnaðardeild, vöktun og upplýsingar og vegaþjónusta. Starfið er auglýst án staðsetningar þar sem Vegagerðin er með svæðisstöðvar í öllum landsfjórðungum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirábyrgð og eftirlit með fjármagni til reksturs og þjónustu jarðganga á landsvísu.
Gegnir hlutverki öryggisfulltrúa jarðganga með ábyrgð á verklagsreglum, áhættumati, viðbragðsáætlunum og eftirfylgni öryggismála.
Samstarf við neyðaraðila og hefur umsjón með skipulagi og framkvæmd öryggisæfinga í jarðgöngum og einnig fyrir aðra hluta vegakerfisins.
Samstarf við viðbragðasaðila á landsvísu og kemur að gerð viðbragðsáætlana og öðrum verkefnum í rekstri samgöngukerfis.
Ábyrgð á samræmingu og forgangsröðun verkefna í samræmi við áhættumat og rekstrarþörf jarðganga.
Þátttaka í þróun framtíðarsýnar, tækniþróun og umbótaverkefnum á sviði öryggis og reksturs jarðganga.
Hæfniskröfur
Verkfræðingur, tæknifræðingur eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Meistarapróf kostur.
Reynsla af verkefnastjórnun og áætlanagerð.
Þekking og reynsla af ferlavinnu og hagnýtingu hugbúnaðar kostur.
Þekking og skilningur á tækjavinnu, rekstrar- og öryggsmálum.
Hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og að vinna sjálfstætt.
Skipulagshæfni, frumkvæði og metnaður í starfi.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkfræðingafélag Íslands hafa gert.
Frekari upplýsingar um starfið
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu, auk afrita af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri/sérfræðingur
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.06.2026
Umsóknarfrestur
16.06.2026