Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Lausar eru til umsóknar stöður sérfræðilækna á svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala. Reiknað er með vinnuframlagi á öllum einingum svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítala. Starfsemi deildarinnar er fjölbreytt og sinnum við svæfingum og deyfingum fyrir flestar sérgreinar skurðlækninga. Svæfingaþjónusta fyrir fæðandi konur og kvensjúkdóma er hluti af starfsemi svæfinga- og gjörgæsludeildar Landspítala við Hringbraut. Upphaf starfa er samkomulagsatriði. Starfshlutfall skv. samkomulagi, vinnufyrirkomulag er dagvinna með húsvöktum og bakvöktum.

Fyrir utan svæfingar á skurðstofugöngum í Fossvogi og við Hringbraut er svæft alla daga vikunnar á hjartaþræðingarstofum, æðaþræðingastofu, speglunardeild og röntgendeild. Gjörgæsludeildirnar í Fossvogi og við Hringbraut sinna bæði gjörgæslulækningum barna og fullorðinna. Þá sinna læknar með sérhæfingu í verkjameðferð sjúklingum með bráða og langvinna verki á vegum Verkjateymis Landspítala. Á innskriftarmiðstöð sinna svæfingalæknar undirbúningi sjúklinga fyrir aðgerð. Svæfingalæknar manna þyrlusveit Landhelgisgæslunnar í samstarfi við bráðalækna en það er valkvæð viðbót við starfið á svæfinga- og gjörgæsludeild.

Sérfræðilæknum sem ráðnir verða stendur til boða þátttaka í framhaldsmenntunarnámskeiðum Scandinavian Society of Anaesthesiology and Intensive Care Medicine (SSAI).

Á deildinni starfa rúmlega 40 sérfræðilæknar og rúmlega 20 sérnámslæknar í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir spítalans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við svæfinga- og gjörgæslulækningar og verkjameðferð á deildinni

  • Vaktir samkvæmt vaktafyrirkomulagi sérgreinarinnar

  • Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækna og prófessor

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í svæfinga- og gjörgæslulækningum

  • Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við yfirlækna deildarinnar

  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum

  • Reynsla í kennslu og vísindavinnu er æskileg

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir, læknir með lækningaleyfi

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kári Hreinsson

forstöðulæknir

Tölvupóstur: karih@landspitali.is

Sími: 825-3790

Katrín María Þormar

yfirlæknir

Tölvupóstur: kata@landspitali.is

Sími: 825 3665

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir í svæfinga- og gjörgæslulækningum

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

08.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026