
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri sérnáms í bæklunarlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026
Kennslustjóri sérnáms í bæklunarlækningum
Laust er til umsóknar hlutastarf kennslustjóra sérnáms í bæklunarlækningum við Landspítala frá 1. september 2026 eða skv. samkomulagi. Um er að ræða 30% stöðu kennslustjóra í hlutasérnámi í bæklunarskurðlækningum. Kennslustjóri er leiðtogi og fyrirmynd og ber ábyrgð á innihaldi, gæðum og framkvæmd sérnáms í bæklunarlækningum auk víðtækrar leiðandi aðkomu að starfsmannamálum sérnámslækna. Meginhlutverk er að tryggja öflugt sérnám og stuðla þannig að árangursríkum lækningum, góðri þjónustu og öryggi sjúklinga ásamt viðeigandi mönnun greinarinnar til framtíðar. Þá gegnir kennslustjóri einnig mikilvægu hlutverki í uppbyggingu og framkvæmd vísindastarfa og umbótavinnu.
Kennslustjóri vinnur í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðulækna, yfirlækna, umsjónarsérnámslækna og annað samstarfsfólk. Kennslustjóri hefur aðgang að skrifstofuaðstöðu innan bæklunarlækninga og skrifstofu sérnáms og starfar náið með skrifstofustjóra og verkefnastjórum. Næsti yfirmaður er yfirlæknir sérnáms. Lesa má nánar um hlutverk kennslustjóra í reglugerð 856/2023.
Leitað er eftir sérfræðilækni með víðtæka reynslu og hæfni til að vera í forystu sérnáms í bæklunarlækningum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Íslenskt sérfræðileyfi í bæklunarlækningum
Leiðtogahæfileikar og geta til að leiða umbótastarf og breytingar, auk frumkvæðis og metnaðar til að ná árangri
Áhugi og reynsla af kennslu og klínískri þjálfun lækna
Afburða hæfni í mannlegum samskiptum, teymisvinnu og samvinnu við samstarfsfólk
Skilyrði er að kennslustjóri hafi klínískar starfsskyldur við starfseiningu sem samþykkt er til sérnáms af mats- og hæfisnefnd í bæklunarlækningum
Kennslustjóri þarf að hafa lokið viðeigandi þjálfun í handleiðslu
Hæfniskröfur
Fagleg ábyrgð á innihaldi og framkvæmd sérnáms í viðeigandi sérgrein í samræmi við marklýsingu og alþjóðlega gæðastaðla auk viðhalds á marklýsingu í samvinnu við kennsluráð
Að leiða samræmt ráðningaferli í sérnámi tvisvar á ári
Að leiða kennsluráð sérnáms í bæklunarlækningum
Víðtæk leiðandi aðkoma að starfsmannamálum sérnámslækna, í samráði við stjórnendur með þríþætta ábyrgð
Skipulag og útgáfa námsblokka sérnámslækna í samræmi við marklýsingu
Skipulag fræðslu og færniþjálfunar í samræmi við marklýsingu
Góð almenn íslensku- og enskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
Yfirlit yfir birtar vísindagreinar (eða í ritrýni) sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur sem uppfylla hæfnikröfur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík
Starfshlutfall er 30%
Umsóknarfrestur er til og með 25.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Dís Óskarsdóttir
Tölvupóstur: margdis@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Kennslustjóri sérnáms í bæklunarlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
25.06.2026