Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður við hjúkrun - Neskaupstaður - Hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

10.07.2026

Aðstoðarmaður við hjúkrun - Neskaupstaður - Hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í tvær stöður aðstoðarmenn við hjúkrun á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 50-100% eða eftir samkomulagi og unnið er á vöktum. Stöðurnar veitast frá 1. september eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Aðhlynning og tilfallandi störf á hjúkrunardeild. Þetta er gott tækifæri fyrir þá sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu tengdri hjúkrun.

Hæfniskröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.07.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Berglind Svavarsdóttir

Tölvupóstur: heida.b.svavarsdottir@hsa.is

Óli Freyr Axelsson

Tölvupóstur: oli.f.axelsson@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmaður við hjúkrun - Neskaupstaður - Hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

10.07.2026