Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi á Siglufirði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Þjónustufulltrúi á Siglufirði

Fjölbreytt starf þjónustufulltrúa hjá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra, með starfsstöð á Siglufirði, er laust til umsóknar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða krefjandi og fjölbreytt skrifstofustarf. Þjónustufulltrúi hefur það megin hlutverk að veita góða alhliða þjónustu. Verkefnin eru afgreiðsla og afleysingar í þeim fjölmörgum málaflokkum sem sýslumannsembættið sinnir sem og í þeim verkefnum sem unnin eru í umboði annarra stofnana. Má þar nefna aðstoð við sérverkefni sem embættið hefur með höndum og eru unnin í teymi starfsfólks, móttöku og miðlun gagna, símsvörun, innheimtu skatta, afgreiðslu vegabréfa og ökuskírteina ásamt afleysingum gjaldkera.

Þjónustufulltrúi vinnur að faglegri afgreiðslu mála samkvæmt gildandi lögum og verkferlum í þeim málaflokkum sem hann starfar við.

Hæfniskröfur

  • Starfsreynsla og þekking sem nýtist vel í starfi.

  • Þekking á verkefnum sýslumanna er kostur.

  • Góð þekking og færni á helstu tölvuforrit.

  • Hæfni til að tileinka sér ýmis sérhæfð tölvukerfi nauðsynleg.

  • Vandvirkni og ögun í vinnubrögðum og skipulagsfærni.

  • Mjög gott frumkvæði og sjálfstæði í starfi.

  • Framúrskarandi þjónustulund.

  • Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum.

  • Gott talnalæsi og færni í meðferð talna.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Með umsókn um starfið skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá ásamt upplýsingum um meðmælendur, auk annarra atriða sem máli kunna að skipta. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er fram að umsóknir geta gilt í 6 mánuði, sbr. reglur nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa. Allir einstaklingar óháð kyni eru hvattir til að sækja um starfið. Æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst.

Embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra leggur áherslu á góða þjónustu og öfluga liðsheild og mjög góðan starfsanda. Tekin hefur verið upp 36 stunda vinnuvika. Skrifstofur embættisins eru á Siglufirði, Akureyri, Húsavík, Dalvík og Þórshöfn og starfsfólk er 25 talsins.

Sýslumenn fara með framkvæmdarvald ríkisins í héraði og veita margvíslega opinbera þjónustu um land allt, ýmist rafrænt eða á fjölmörgum skrifstofum sýslumanna. Nýr kafli er hafinn í sögu embættanna sem byggir á tækniframförum, stafrænni vegferð og þróun þjónustulausna.

Hinn 1. janúar 2027 tekur nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eydís Eyjólfsdóttir

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: eydis.eyjolfsdottir@syslumenn.is

Sími: 458-2600

Þjónustuaðili

Sýslu­mað­urinn á Norður­landi eystra

Upplýsingar um starf

Starf

Þjónustufulltrúi á Siglufirði

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026