Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri í endurhæfingarteymi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026

Teymisstjóri í endurhæfingarteymi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri óskar eftir að ráða öflugan iðjuþjálfa í starf teymisstjóra í endurhæfingarteymi í heimahjúkrun. Um er að ræða 100% ótímabundið starf í dagvinnu. Næsti yfirmaður teymisstjóra er deildarstjóri heimahjúkrunar.

Í heimahjúkrun starfa að jafnaði um 55 starfsmenn í sex teymum sem skiptist niður í 3 systrateymi. Við heimahjúkrun starfar samheldinn hópur diplómasjúkraliða, sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, öldrunarsálfræðingur, sjúkraþjálfari og iðjuþjálfar sem leggja mikinn metnað í að þjónusta einstaklinga á öllum æviskeiðum. Heimahjúkrun leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður og mæta starfsfólki sínu með sveigjanleika.

Um er að ræða gefandi starf í frábæru teymi þar sem áhersla er lögð á faglega þjónustu og vellíðan í starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgefandi hlutverk og stuðningur við starfsfólk teymisins

  • Dagleg stjórnun teymisins

  • Taka þátt í þróun og eflingu teymisins

  • Yfirumsjón með þörfum þjónustuþega

  • Hjálpa einstaklingum til að viðhalda sjálfstæði og gera þeim kleift að taka virkan þátt í samfélaginu

  • Vinna að frekari uppbyggingu þjónustunnar á starfssvæðinu ásamt öðrum teymisstjórum og stjórnendum heimahjúkrunar

  • Öflugt samstarf og samvinna við önnur teymi og aðra teymisstjóra heimahjúkrunar

  • Tímabundnar vitjanir og þjálfun í heimahúsí

  • Skipulag sólahringsþjónustu fyrir skjólstæðing

  • Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra

  • Önnur tilfallandi störf skv. beiðni næsta yfirmanns

Hæfniskröfur

  • Fullgilt starfsleyfi Iðjuþjálfa

  • Reynslu af starfi í heimahjúkrun kostur

  • Reynsla og þekking af endurhæfingu kostur

  • Farsæl reynsla af sambærilegu starfi/teymisstjórnun er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Áhugi og góð reynsla af teymisvinnu

  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögðum

  • Góð íslenskukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni og sýn viðkomandi á starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eva Björg Guðmundsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: eva.bjorg.gudmundsdottir@hsn.is

Sími: 863 7532

Ingibjörg Lára Símonardóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is

Sími: 432 4642

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Teymisstjóri í endurhæfingarteymi í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026