Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026

Aðstoðardeildarstjóri í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) á Akureyri, heimahjúkrun óskar eftir að ráða aðstoðardeildarstjóra í 100% ótímabundið starf í dagvinnu. Leitað er að kraftmiklum leiðtoga sem er tilbúinn til að leiða teymi og taka virkan þátt í daglegri starfsemi deildarinnar. Aðstoðardeildarstjóri er staðgengill teymisstjóra og deildarstjóra í fjarveru þeirra.

Helstu verkefni felast í ábyrgð á mönnun, skipulagningu og stjórnun daglegra starfsemi í nánu samstarfi við deildarstjóra. Þá tekur viðkomandi þátt í fjölbreyttum verkefnum sem snúa að rekstri, stjórnun eininga og mannauðsmála.

Í heimahjúkrun starfa að jafnaði um 55 starfsmenn. Sex teymi eru starfrækt í heimahjúkrun eitt þeirra er endurhæfingarteymi. Við heimahjúkrun starfar samheldinn hópur sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, félagsliða, iðjuþjálfa, sálfræðingur og sjúkraþjálfari sem leggja mikinn metnað í að þjónusta einstaklinga á öllum æviskeiðum þeirra. Heimahjúkrun leggur áherslu á að vera fjölskylduvænn vinnustaður og mæta starfsfólki sínu með sveigjanleika.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ráðgefandi hlutverk og stuðningur við teymisstjóra

  • Staðgengill teymisstjóra í þeirra fjarveru

  • Staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans

  • Aðstoð við stjórnun og rekstur á starfsemi heimahjúkrunar í samráði við deildarstjóra

  • Sinnir almennum klínískum hjúkrunarstörfum og ber ábyrgð á þeim

  • Vinna að frekari uppbyggingu þjónustunnar ásamt teymisstjórum og deildarstjóra

  • Þátttaka í stefnumótun, mótun starfsáætlana og verkferla

  • Sjá um eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar í samráði við deildarstjóra

  • Ráðgjöf og fræðsla til íbúa, aðstandenda og starfsmanna

  • Skipulag sólahringsþjónustu fyrir skjólstæðing

  • Önnur verkefni skv. beiðni deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi

  • Haldbær reynsla af hjúkrunarstörfum sem nýtist í starfi skilyrði

  • Farsæl reynsla af sambærilegu starfi er kostur

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi kostur

  • Farsæl reynsla og áhugi af vinnu í þverfaglegu teymi og teymisstjórnun

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfni

  • Reynsla af RAI-mælitækinu er kostur

  • Reynsla af uppbyggingu og þróun nýrrar þjónustu er kostur

  • Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og frumkvæði

  • Faglegur metnaður og sveigjanleiki

  • Góð almenn íslensku- og tölvukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni og sýn viðkomandi á starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af starfsleyfi og prófskírteini.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Eva Björg Guðmundsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: eva.bjorg.gudmundsdottir@hsn.is

Sími: 863 7532

Ingibjörg Lára Símonardóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: inga.lara.simonardottir@hsn.is

Sími: 432 4642

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðardeildarstjóri í heimahjúkrun á Akureyri - Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

03.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026