Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Norður­lands vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Stærðfræðikennari við FNV

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026

Stærðfræðikennari við FNV

Leitað er eftir kennara með þekkingu og reynslu til þess að kenna efri áfanga námskrár í stærðfræði á framhaldsskólastigi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi, námsmati og faglegu samstarfi ásamt gerð kennsluáætlana og prófa.

Hæfniskröfur

Umsækjandi skal hafa menntun sem nýtist í starfi. Lögð er áhersla á mjög góða samskiptahæfileika í faglegu og þverfaglegu samstarfi. Einnig er lögð áhersla á frumkvæði í starfi, sjálfstæð vinnubrögð, áhuga og áreiðanleika.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra er metnaðarfullur og framsækinn skóli sem býður upp á afar fjölbreytt nám, bóknám, verknám og fjarnám, nám á hestabraut, kvikmyndabraut og starfsbraut sem og íþróttaakademíu í hinum ýmsu íþóttagreinum. Við skólann er heimavist og sömuleiðis er boðið upp á helgarnám í iðngreinum. Skólinn starfar undir kjörorðunum vinnusemi, virðing og vellíðan. Í skólanum starfar öflugur og samheldinn hópur starfsfólks sem hefur fagmennsku að leiðarljósi.

Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, leyfisbréf sem kveður á um rétt til að nota starfsheitið kennari sbr. lög nr. 95/2019 og sakavottorð.

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Laufey Leifsdóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: laufeyl@fnv.is

Sími: 6602075

Þjónustuaðili

Fjölbrauta­skóli Norður­lands vestra

Upplýsingar um starf

Starf

Stærðfræðikennari við FNV

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

18.06.2026