
Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsmála- og forvarnafulltrúa við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30%
Starf skráð
03.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026
Félagsmála- og forvarnafulltrúa við Menntaskólann við Hamrahlíð
Menntaskólinn við Hamrahlíð óskar eftir að ráða félagsmála- og forvarnafulltrúa í hlutastarf skólaárið 2026-2027. Í MH er boðið upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum og alþjóðlegri námsbraut, IB-braut, auk náms á fjölnámsbraut. Rúmlega 100 starfsmenn starfa við skólann og nemendur eru rúmlega 1000.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér mikið samstarf við stjórn nemendafélagsins, nemendur og annað starfsfólk skólans.
Vera nemendum til ráðgjafar um félagsstörf á vegum Nemendafélags MH, NFMH.
Skipuleggja umsjón og eftirlit með viðburðum.
Fara yfir umsóknir nemenda vegna viðburða og samkoma NFMH.
Sitja skólastjórnarfundi þar sem farið er yfir starf NFMH og hagsmunamál nemenda.
Vera nemendum til ráðgjafar og fylgjast með útgáfustarfsemi á vegum NFMH.
Vera tengiliður milli nemenda og stjórnenda skólans.
Vera talsmaður forvarnastefnu skólans og fylgja henni eftir í samráði við stjórnendur og stoðþjónustu.
Samhæfa forvarnafræðslu fyrir nemendur og starfsfólk.
Aðstoða nemendur sem vilja hætta neyslu og styðja nemendur sem hafa valið sér líf án áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna.
Vera til viðtals fyrir nemendur, starfsfólk og þá sem skólanum tengjast.
Vera í samstarfi við foreldraráð.
Vera tengiliður Heilsueflandi framhaldsskóla.
Önnur verkefni í samráði við rektor.
Hæfniskröfur
Umsækjandi skal hafa háskólamenntun í tómstunda- og félagsmálafræðum eða aðra sambærilega menntun sem nýtist í starfi sem félagsmála- og forvarnafulltrúi í framhaldsskóla.
Aðrar hæfniskröfur
Búa yfir faglegum metnaði, sveigjanleika, frumkvæði, öguðum vinnubrögðum og jákvæðu hugarfari.
Búa yfir samskiptafærni og hæfni til að starfa með öðrum og leiðbeina sem og að vinna sjálfstætt.
Hafa unnið með unglingum á framhaldsskólaaldri og geta átt góð og leiðbeinandi samskipti
Hafa góða tölvukunnáttu og þekkingu á upplýsingatækni, m.a. kunnátta og þekkingu á Office365 og þeim samfélagsmiðlum sem nemendur á framhaldsskólaaldri nýta mest.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað í gegnum Starfatorg, starfatorg.is. Náms- og starfsferilsskrá skal fylgja innsendri umsókn ásamt þeim gögnum sem umsækjendur telja skipta máli í ráðningarferlinu, t.d. prófskírteinum og sakavottorði. Innsend gögn verða lögð til grundvallar ráðningu í starfið. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið.
Starfshlutfall er 30%
Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: rektor@mh.is

Þjónustuaðili
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Upplýsingar um starf
Starf
Félagsmála- og forvarnafulltrúa við Menntaskólann við Hamrahlíð
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
30%
Starf skráð
03.06.2026
Umsóknarfrestur
15.06.2026