
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Upplýsingar um starf
Starf
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (FG) óskar eftir að ráða kennara til afleysingar í sögu og stjórnmálafræði í sex vikur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (FG) óskar eftir að ráða kennara til afleysingar í sögu og stjórnmálafræði í sex vikur
FG er framsækinn og traustur framhaldsskóli. Nemendur eru um 700 og starfsfólk skólans um 70 talsins. Skólinn býður upp á fjölbreytt og gott nám í þriggja anna kerfi á sjö brautum til stúdentsprófs auk sérnámsbrautar og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og góðan skólabrag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir kennara með réttindi til kennslu í félagsgreinum á framhaldsskólastigi. Sérstaklega er horft til þess að kennari sýni frumkvæði í starfi, góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum og sé hæfur til að skapa faglegt og hvetjandi námsumhverfi og taka þátt í faglegu samstarfi kennara og starfsfólks við skólann. Starfið er til afleysingar fram í október.
Hæfniskröfur
Umsækjandi þarf að hafa réttindi til að nota starfsheitið kennari (leyfisbréf kennara) og uppfylla kröfur um menntun og hæfni skv. lögum nr. 95/2019 og hæfniðviðmið reglugerðar 1355/2022 um almenna og sérhæfða hæfni kennara í framhaldsskóla. Sérstaklega er bent á að kennari þarf að hafa sérhæfingu á viðkomandi fagsviði til að kenna á 2.-4. hæfnisþrepi.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.
Áhugasamir setji sig í samband við skólameistara eða aðstoðarskólameistara hið fyrsta.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Upplýsingar um starf
Starf
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ (FG) óskar eftir að ráða kennara til afleysingar í sögu og stjórnmálafræði í sex vikur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
13.08.2026
Umsóknarfrestur
24.08.2026