Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu og rekur 13 starfsstöðvar, þar á meðal umdæmissjúkrahús Austurlands, heilsugæslustöðvar og sel og hjúkrunarheimili. Heilbrigðisumdæmi Austurlands þjónar sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi og Fjarðabyggð.

Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Austurlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Hæfniskröfur

Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi. Hæfniskröfur eru eftirfarandi:

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.

  • Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum er skilyrði.

  • Þekking og reynsla af stjórnun á rekstri í heilbrigðisþjónustu er æskileg.

  • Þekking og reynsla af áætlunargerð og fjármálum hins opinbera er æskileg.

  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.

  • Farsæl reynsla af stjórnun mannauðsmála.

  • Reynsla af stefnumótun í heilbrigðisþjónustu.

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi sjúkrahússins og heilbrigðiskerfið.

  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Um launakjör fer samkvæmt 39. gr. a laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Starfshlutfall er 100%.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júní nk. Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá með upplýsingar um menntun ásamt menntunargögnum og ítarlegu kynningarbréfi á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í embættið.

Sótt er um starfið í gegnum ráðningavef ríkisins á island.is/starfatorg.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið hefur verið tekin.

Ráðgefandi hæfisnefnd skipuð af heilbrigðisráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra skv. 39. gr. b. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ásta Valdimarsdóttir

Ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytisins

Tölvupóstur: hrn@hrn.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026