Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma

Sjúkraliði óskast til starfa á legudeild geðrofssjúkdóma. Við sækjumst eftir metnaðarfullum sjúkraliða sem hefur áhuga á að starfa með fólki með geðrænar áskoranir, bæði í bráðaveikindum og endurhæfingu. Áhersla er lögð á notendamiðaða þjónustu og góðan starfsanda. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 15. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Legudeild geðrofssjúkdóma sinnir greiningu, meðferð og endurhæfingu fólks með geðrofssjúkdóma. Deildin er 16 rúma, 10 rými ætluð einstaklingum með bráð veikindi og 6 rými ætluð til endurhæfingar. Á deildinni er boðið upp á samtalsmeðferð, virknimeðferð, fræðslu, lyfjameðferð og áhersla er lögð á öfluga fjölskylduvinnu. Markmið meðferðarvinnu er að auka lífsgæði og valdefla sjúklinga, draga úr hamlandi geðrofseinkennum og þjálfa upp bjargráð til að lifa með geðrofssjúkdóm.

Starfið felur í sér að veita líkamlega og andlega umönnun og hjúkrun, hvatningu við athafnir daglegs lífs, ferðir í ýmsa virkni og að tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks á deild með þátttöku í varnarteymi geðþjónustu. Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfsmannahópnum þar sem leitast er við að nýta þekkingu og færni hvers starfsmanns í deildarstarfið.

Unnið er á þrískiptum vöktum, morgun-, kvöld- og næturvöktum. Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Boðið er upp á einstaklingsmiðaða aðlögun, stuðning í starfi og starfsþróunarár fyrir sjúkraliða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun, umönnun og stuðningur við meðferð einstaklinga

  • Virk þátttaka í þverfaglegu starfi á deild

  • Er leiðandi og styðjandi við annað starfsfólk á deild varðandi líkamlega umönnun, byltuvarnir og sýkingarvarnir

  • Stuðla að öryggi sjúklinga og starfsfólks með virkri þátttöku í varnarteymi geðþjónustunnar

  • Umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar

  • Stuðla að góðum starfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi

  • Reynsla af líkamlegri umönnun

  • Áhugi á geðhjúkrun

  • Reynsla af geðhjúkrun kostur

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Hæfni til að vinna vel undir álagi

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, hjúkrun

Tungumálakunnátta: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðfinna Betty Hilmarsdóttir

Tölvupóstur: gudfinna@landspitali.is

Lóa Björk Bjerkli Smáradóttir

Tölvupóstur: loabsma@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á legudeild geðrofssjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

16.06.2026