Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í geðheilsuteymi fullorðinna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Sálfræðingur í geðheilsuteymi fullorðinna á HSN

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að drífandi og metnaðarfullum sálfræðingi í geðheilsuteymi fullorðinna. Við óskum eftir jákvæðum einstaklingi sem hefur áhuga á þverfaglegu teymisstarfi og þjónustu við fjölbreyttan hóp skjólstæðinga. Starfið er krefjandi, fjölbreytt og gefandi og býður upp á góð tækifæri til faglegrar þróunar. Góð handleiðsla í boði.

Geðheilsuteymið veitir 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu og sinnir fullorðnum með geðrænan vanda sem þurfa á þverfaglegri meðferð að halda. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Greining og meðferð algengustu geðraskana

  • Fræðsla, ráðgjöf og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur

  • Þátttaka í uppbyggingu á geðþjónustu við fullorðna á Norðurlandi

  • Umbótavinna í þverfaglegu geðheilsuteymi

  • Þátttaka í stefnumótun, mótun starfsáætlana og verkferla

  • Samstarf við aðrar fagstéttir, stofnanir og þjónustuveitendur

Hæfniskröfur

  • Sálfræðingur með löggildingu og réttindi til starfa á Íslandi

  • Þekking og reynsla af greiningu og meðferð algengustu geðraskana

  • Þekking á gagnreyndum meðferðarúrræðum við geðröskunum

  • Jákvæð reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi er kostur

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hlýtt viðmót

  • Lausnamiðuð hugsun og hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður

  • Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi okkar eru Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Alice Harpa Björgvinsdóttir

forstöðumaður sálfélagslegrar þjónustu

Tölvupóstur: alicehb@hsn.is

Sími: 432 4970

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í geðheilsuteymi fullorðinna á HSN

Staðsetning

Óstaðbundið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

29.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026