Þjónustuaðili
Skatturinn
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðssérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026
Mannauðssérfræðingur
Við leitum að öflugum og áhugasömum sérfræðingi til að ganga til liðs við mannauðsteymið okkar á sviði mannauðs- og fjármála í höfuðstöðvum Skattsins í Katrínartúni í Reykjavík.
Skatturinn er framsækinn vinnustaður sem gegnir lykilhlutverki við tekjuöflun ríkis og sveitarfélaga. Með virku eftirliti, rannsóknum og tollgæslu stuðlum við að jafnræði og virkri samkeppni og vernd við samfélagið. Gildi Skattsins eru fagmennska, framsækni og samvinna.
Starfið heyrir undir deildarstjóra mannauðs og felur í sér tækifæri til þess að koma að fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála innan stofnunar þar sem starfsfólk sinnir ólíkum og fjölbreyttum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðgjöf og leiðbeiningar til stjórnenda og starfsfólks í fjölbreyttum verkefnum á sviði mannauðsmála
Umsjón með ráðningaferlum og móttöku nýs starfsfólks
Vinnustaðagreiningar og stuðningur við umbætur í vinnuumhverfi
Þátttaka í þróunar- og úrbótaverkefnum á sviði mannauðsmála, þ. á m. tengdum stafrænum lausnum
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Reynsla af verkefnum á sviði mannauðsmála
Þekking á og/eða reynsla af mannauðs- og kjaramálum hjá opinberum stofnunum er kostur
Góð færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og fagmennska
Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði að loknum umsóknarfresti.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Margrét Eysteinsdóttir
deildarstjóri mannauðs
Tölvupóstur: gudrun.m.eysteinsdottir@skatturinn.is
Sími: 442 1000
Þjónustuaðili
Skatturinn
Upplýsingar um starf
Starf
Mannauðssérfræðingur
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
29.05.2026
Umsóknarfrestur
08.06.2026