Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Umsjónarmaður fasteigna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026

Umsjónarmaður fasteigna

Laust er til umsóknar fullt starf umsjónarmanns fasteigna við framkvæmda- og tæknisvið Háskóla Íslands. Starfið felur í sér umsjón með byggingum Háskóla Íslands og þjónustu við starfsfólk og nemendur skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þjónusta við starfsfólk og nemendur m.a. við flutninga, aðstoð í kennslustofum og í kringum viðburði

  • Dagleg umsjón með húsnæði og búnaði

  • Umsjón og eftirlit með öryggismálum

  • Eftirlit með ræstingu

  • Tilfallandi viðhald í byggingum

Hæfniskröfur

  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg

  • Iðnmenntun og/eða reynsla af iðnaðarmannastörfum er æskileg

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum ásamt þjónustulipurð og sveigjanleika

  • Kunnátta í íslensku og ensku

  • Reynsla af notkun öryggis- og hússtjórnarkerfa er kostur

  • Bílpróf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um umsagnaraðila

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Björn Auðunn Magnússon

Tölvupóstur: bam@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Umsjónarmaður fasteigna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.06.2026

Umsóknarfrestur

19.06.2026