Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Framendaforritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026
Framendaforritari
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum?
Við óskum eftir framendaforritara til þess að ganga til liðs við öflugt upplýsingatæknisvið hjá HMS. Fjölbreytt og spennandi verkefni eru fram undan við nýþróun og viðhald hugbúnaðarlausna sem eru hluti af framtíðarsýn stofnunarinnar og skipta sköpum fyrir samfélagið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun og viðhald stafrænna lausna HMS og þá sérstaklega vef HMS og tengdum vefum
Þróun og smíði notendaviðmóts með áherslu á notendamiðaða hönnun og aðgengi
Samskipti við vörueigendur, hugbúnaðarteymi, birgja og fleiri hagaðila
Þátttaka í áframhaldandi uppbyggingu hönnunarkerfis og viðmótssafns HMS
Þátttaka í áframhaldandi umbótum og þróun á stafrænu umhverfi HMS
Hæfniskröfur
Menntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum sem nýtist í starfi [EÓ1]
Reynsla af smíði notendaviðmóts í React umhverfi
Þekking á Typescript, React, CSS í JS(Stylex), NextJs, NextAuth/BetterAuth
Skilningur á aðgengismálum og notendaupplifun ásamt áhuga á vefmálum
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og jákvætt viðhorf
Gott vald á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Um er að ræða fullt starf og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknum skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi fyrir starfið.
Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
HMS leggur áherslu á fjölbreytni og hvetur alla áhugasama einstaklinga óháð kyni til að sækja um.
Sótt er um starfið á heimasíðu HMS, Vinnustaðurinn | Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.06.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Framendaforritari
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.06.2026
Umsóknarfrestur
12.06.2026